Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

ÓL dagur 11: Jón Erik keppir í svigi

Read Full Article →

Það er nóg um að vera á Vetrarólympíuleikunum í dag. Jón Erik Sigurðsson keppir í sinni síðustu grein á leikunum er hann keppir í svigi karla. Báðar ferðir hans eru á RÚV í dag. Fyrri ferð byrjar klukkan 08:50 en ekki er endanlega staðfest hvenær Jón keppir. Seinni ferðin hefst klukkan 12:20. Klukkan 11:00 fer fram keppni í 1.000 metra skautaati kvenna. Skautaatið þykir afar spennandi íþrótt þar sem hreinlega allt getur gerst. Ólympíukvöld er aftur á dagskrá í kvöld þar sem Gunnar Birgisson og Edda Sif Pálsdóttir fara yfir allt það helsta á leikunum. Ólympíukvöld hefst klukkan 21:15. Kvöldinu lýkur svo með skíðafimi kvenna á stórum palli. Auk þess er parakeppni í frjálsum æfingum á listkautum auk tveggja íshokkíleikja á dagskrá.

Share this article