Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Væri hægt að taka frá „netsneið“

  • What: Discussion about replacing TETRA communication system in Iceland
  • Impact: Public safety communication infrastructure is under review for modernization
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.4.2026 | 10:15 Væri hægt að taka frá „netsneið“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir ræðir við Auðun Kristinsson hjá LHG við komuna til Akureyrar. Á fundinum í síðustu viku var rætt um þörfina fyrir að skipta út TETRA og verður starfshópur skipaður von bráðar. mbl.is/Margrét Þóra Þórsdóttir Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Hrafnkell Viðar Gíslason forstjóri Fjarskiptastofu kveðst mjög ánægður með að stjórnvöld hyggist setja á laggirnar starfshóp til að skoða valkosti varðandi þróun fjarskiptakerfis björgunaraðila. Á fundi Varðbergs hjá Háskólanum á Akureyri á fimmtudag sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra að mikil þörf væri fyrir nýtt kerfi enda TETRA-kerfið að úreldast, og að ráðuneytið hygðist setja saman starfshóp. Hrafnkell segir Finna komna lengst í að skipta út sínu TETRA-kerfi en þar tekur við svokallað Virve 2.0-kerfi árið 2028. „Svíar munu hefja notkun á nýju kerfi árið 2028 og hyggjast leggja TETRA niður 2030 og Noregur taka upp nýtt kerfi 2029 en loka TETRA 2031,“ segir hann en gildandi TETRA-samningur Íslands rennur út 2032. Að mati Hrafnkels væri æskilegt að nefnd dómsmálaráðherra tæki hratt til starfa því Ísland geti átt möguleika á styrkjum frá ESB til að fjármagna uppbyggingu nýs kerfis að hluta. Hann segir breytingar á styrkjakerfinu í farvatninu sem auka fé til verkefna sem stuðla að öryggi og áfallaþoli, en eftir 2028 verði um samkeppnisstyrki að ræða og því mikilvægt að vanda til verka. Tóku frá tíðni í 4G og 5G TETRA-kerfið er um það bil þriggja áratuga gamalt og hefur þjónað hlutverki sínu vel. Þótti það mikill kostur, þegar kerfið var innleitt á sínum tíma, að það var áreiðanlegt og öruggt, og hafði þann kost að margir gátu talað saman innan sama talhóps. TETRA er alveg aðskilið frá almenna farsímakerfinu og gengur fyrir eigin varaafli, en um 200 TETRA-sendar eru dreifðir um landið. Hrafnkell segir að auk neyðar- og björgunaraðila hafi kerfið t.d. verið opið félögum sem reka mikilvæga innviði. „En öll tækni úreldist og það sem einkum vantar í TETRA í dag er háhraðagagnaflutningur, en einnig gæti tekið að þrengja að dulritunargetu kerfisins eftir því sem tækninni fleygir fram.“ Þegar kemur að næstu skrefum standa nokkrir kostir til boða. Ein leið, að sögn Hrafnkels, er svokölluð MCX-viðbót við 5G-kerfið. MCX stendur fyrir „Mission Critical Services“ og býður upp á þá eiginleika sem TETRA býr yfir, s.s. hópsamtöl. Þá segir Hrafnkell að búið sé að taka frá tiltekið tíðnisvið fyrir neyðarþjónustu í 4G- og 5G-kerfunum, og síðar 6G þegar sú tækni kemur, en 4G, 5G og 6G byggjast á sama staðlagrunninum. „TETRA keyrir á tíðninni 450 MHz en 4G og 5G geta farið niður í 700 og 800 MHz sem veitir einnig þokkalega útbreiðslu,“ útskýrir hann. Þarf síðan að ákveða hvort ríkið reki og eigi með öllu sitt eigið kerfi, MCX-kjarna og landsnet, ella reiði sig að mismiklu marki á markaðsaðila, en Hrafnkell segir að í 5G-kerfinu sé hægt að taka frá svokallaða „netsneið“, þar sem tiltekin hluti gagnaflutningsgetunnar er aðeins aðgengilegur viðbragðsaðilum á tilteknum gæðum og með forgangi. 6G verður stórt stökk Eins er rétt að nefna að fjarskipti yfir gervihnött eru að þróast hratt og munu vafalítið leika æ stærra hlutverk í neyðarkerfinu. Með 6G-tækninni má búast við að hægt verði að tala beint frá síma upp í gervitungl, og að gervitunglin verði æ samofnari farnetinu. Hrafnkell bendir á að það sé stutt í 6G, og segja sérfræðingar að þessi nýi kafli í fjarskiptum hefjist í kringum 2030. Innleiðingin mun vitaskuld taka tíma, og rétt eins og með 5G og 4G verður tæknin væntanlega fyrst bundin við fjölmennustu stórborgir. Gaman er að reikna það út að ekki eru nema um 1.350 dagar þar til 2030 gengur í garð og mætti segja að framtíðin sé alveg handan við hornið: „Með 6G munum við sjá gervigreind meira byggða inn í farnetin, og staðsetningartækni verður miklu nákvæmari en við eigum að venjast í dag – og erum við þá að tala um nákvæmni upp á sentimetra,“ segir Hrafnkell. „6G mun m.a. nýtast til að stjórna drónum og alls konar öðrum tækjum og tólum sem eru að ryðja sér til rúms, og framleiðendur eru komnir á fulla ferð við að þróa vörur sem munu nýta sér eiginleika 6G.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Norski olíusjóðurinn tapar um 17 billjónum Væri hægt að taka frá „netsneið“ Sigga Ózk er orðlaus Hrönn í Feel Iceland með nýja vítamínlínu Ef sumarið væri terta þá væri það möndluterta! Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ferðamaðurinn er enn ófundinn Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Hvað vildu þeir til Mexíkó? Veigamikið framsal ríkisvalds Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Jón Pétur með buxurnar á hælunum Þrír hafa verið náðaðir Sviptur ökuréttindum á staðnum Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Svona verður sumardagsveðrið Myndir: Krakkarnir í góðum gír á Akureyri Ekki vitað í hvaða erindagjörðum ferðamaðurinn var Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Norski olíusjóðurinn tapar um 17 billjónum Væri hægt að taka frá „netsneið“ Sigga Ózk er orðlaus Hrönn í Feel Iceland með nýja vítamínlínu Ef sumarið væri terta þá væri það möndluterta! Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þarf árangursríka útlendingastefnu Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Björn Steinar leikur í Notre Dame Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Jón Pétur með buxurnar á hælunum Þrír hafa verið náðaðir Sviptur ökuréttindum á staðnum Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Svona verður sumardagsveðrið Myndir: Krakkarnir í góðum gír á Akureyri Ekki vitað í hvaða erindagjörðum ferðamaðurinn var Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum

Share this article