Innlent | Morgunblaðið | 23.4.2026 | 16:30 Listakosning í fyrsta sinn frá 1958 Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Skuldsett en öflugt sveitarfélag Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Vilja bjóða fjölbreyttari lausnir í leikskólamálum Skólamál, uppbygging og samgöngur í brennidepli Ævintýralegur vöxtur í Ölfusi » Fleiri tengdar fréttir Upp eru runnin tímamót í Árneshreppi á Ströndum nú þegar gengið verður til sveitarstjórnarkosninga. Í fyrsta sinn síðan 1958 verður kosið milli framboðslista í þessu nyrsta sveitarfélagi Strandasýslu. Íbúarnir eru aðeins 63 talsins og því aðeins Tjörneshreppur sem skákar sveitarfélaginu að fámenni. Tveir listar eru í framboði, Á-listi Framtíðar Árneshrepps og S-listi Sólstaða, og virðist ljóst að ólík sjónarmið um sameiningu sveitarfélaga hafi orðið til þess að kosningarnar taka á sig skýrari pólitíska mynd en áður. Svæðið hefur átt í vök að verjast áratugum saman vegna sífellt færri íbúa. Er staðan allt önnur en á fyrri hluta 20. aldar þegar um 500 manns bjuggu á svæðinu, einkum í tengslum við gríðarleg umsvif í Djúpavík og Ingólfsfirði þar sem síldarverksmiðjur voru í rekstri. Arinbjörn Bernharðsson, oddviti S-lista Sólstaða, settist niður með blaðamanni Morgunblaðsins en Sigrún Sverrisdóttir oddviti Á-lista átti ekki kost á að mæta til leiks í vikunni. Arinbjörn segir stöðuna að sönnu snúna en að svæðið eigi sér framtíðarmöguleika. Á fyrri öldum var það sögusvið mikilla atburða. Galdrafárið náði hámarki þar á 17. öld og öldum fyrr, nánar tiltekið árið 1244, varð úti fyrir Trékyllisvík eina sjóorrustan sem háð hefur verið í sögu landsins, hinn svokallaði Flóabardagi. Ferðaþjónusta og landbúnaður burðarásar á svæðinu Atvinnulíf í Árneshreppi byggist í dag á blöndu af landbúnaði, ferðaþjónustu og strandveiðum. Arinbjörn, sem er uppalinn í hreppnum, hefur sjálfur byggt upp ferðaþjónustu á jörðinni Norðurfirði 1 undir nafninu Urðartindur. Þar hefur hann komið upp fjórtán gistirýmum og stefnir að frekari uppbyggingu á komandi árum. Hann segir markmiðið vera að byggja hægt og rólega upp nýjan kjarna í byggðinni. „Ég er að deiliskipuleggja jörðina og er búinn að byggja tvö hús, íbúðarhús og sumarhús, með áform um frekari uppbyggingu,“ segir hann. Að hans sögn þarf að hugsa til framtíðar og skapa forsendur fyrir búsetu og atvinnu, jafnvel þótt það gerist í smáum skrefum. Auk ferðaþjónustu eru fjögur fjárbú rekin í hreppnum og segir Arinbjörn þau meðal hinna afurðamestu á landinu. Þá skipta strandveiðar miklu yfir sumarmánuðina, en um 30 bátar stunda veiðar frá svæðinu. „Þetta skapar vinnu og líf í byggðarlaginu,“ segir hann. Þá nefnir hann einnig söfnin í hreppnum, síldarsafnið í Djúpavík og minja- og handverkshúsið Kört í Árnesi, sem mikilvægan hluta af sérstöðu svæðisins. Arinbjörn Bernharðsson leiðir annan tveggja lista sem bjóða fram í hreppnum. mbl.is/Kristófer Liljar Sameining valdið klofningi Kosningabaráttan í Árneshreppi snýst ekki síst um sameiningarmál. Fyrir um einu og hálfu ári var samþykkt á íbúafundi að fara í sameiningarviðræður við Kaldrananeshrepp og í framhaldinu samþykkti sveitarstjórnin að hefja formlegt ferli. Kosning um sameininguna fór síðan fram og var samþykkt í báðum sveitarfélögum. Í Árneshreppi féllu atkvæðin 25 með sameiningu gegn 18 á móti. Niðurstaðan hefur þó verið kærð til ráðuneytis sveitarstjórnarmála. Ástæðan er sögð vera sú að hreppsskrifstofan hafi verið lokuð suma daga vegna ófærðar á meðan kjörfundur stóð yfir, en hann varði í 14 daga. Ef ráðuneytið staðfestir kosninguna munu sveitarfélögin sameinast og þá verður kosið til nýrrar sveitarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi á haustdögum að sögn Arinbjörns. Arinbjörn segir kosti sameiningar ótvíræða. „Þetta myndi skapa sterkara samfélag, fleiri hendur til að sinna nefndarstörfum og verulegt sameiningarframlag frá Jöfnunarsjóði sem hægt væri að nýta í uppbyggingu innviða,“ segir hann. Jafnframt sé ljóst að fámenn sveitarfélög standi frammi fyrir sívaxandi kröfum sem sífellt erfiðara sé að mæta með svo takmörkuðum mannafla. Skólamál og eldri borgarar Stærsta verkefnið í daglegum rekstri hreppsins segir Arinbjörn vera að halda úti skólastarfi. Nú séu aðeins tvö börn í skólanum, sem rekinn er sem skólasel frá Hólmavík. Kennslan fari fram í skólahúsinu í Árneshreppi, en ljóst sé að þessi þjónusta sé brothætt. Þá telur hann að betur megi sinna eldri borgurum í hreppnum. „Þjónusta við eldri borgara hefur verið vanrækt og mætti sinna henni betur,“ segir hann. Einnig þurfi að halda áfram vinnu við skipulagsmál, þar sem aðalskipulag hreppsins sé í endurskoðun, og ráðast í umbætur á innviðum, meðal annars við höfnina og húsnæði í eigu hreppsins. Hvalárvirkjun og vegabætur Eitt umdeildasta mál hreppsins er Hvalárvirkjun. Arinbjörn viðurkennir að ekki ríki eining meðal íbúa um framkvæmdina, þótt bæði framboðin styðji hana. S-listinn vill að farið verði í hana án frekari tafa. Að hans mati er stærsti ávinningurinn sá að með virkjuninni fylgi loks burðarhæfur vegur inn í byggðarlagið. „Án virkjunarinnar verður vegurinn aldrei lagður, þrátt fyrir loforð stjórnvalda undanfarin 16 ár,“ segir hann. Fyrir svo afskekkt sveitarfélag skipti slík samgöngubót höfuðmáli fyrir atvinnulíf, þjónustu og búsetuskilyrði. Kosningabaráttan í Árneshreppi er að sögn Arinbjörns hófstillt og fari fram á vinalegum nótum. Það skipti máli í svo litlu samfélagi þar sem allir þekkja alla og þurfa að búa saman áfram, sama hvernig úrslitin ráðast. Árneshreppur er annað fámennasta sveitarfélag landsins. Þar búa nú 62 íbúar en þeir eru 10 færri í Tjörneshreppi. Meirihluti íbúa Árneshrepps hefur samþykkt að sameinast Kaldrananeshreppi en þar eru íbúarnir ríflega 100 talsins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Skuldsett en öflugt sveitarfélag Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Vilja bjóða fjölbreyttari lausnir í leikskólamálum Skólamál, uppbygging og samgöngur í brennidepli Ævintýralegur vöxtur í Ölfusi » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Listakosning í fyrsta sinn frá 1958 Þarf að stoppa allt hjá FH Leiðtoginn þarf lýtaaðgerð og gervifót Akur sigraði í Eyjum Auka aðgengi að marijúana í lækningaskyni Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja bjóða fjölbreyttari lausnir í leikskólamálum Skólamál, uppbygging og samgöngur í brennidepli Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Andlát: Valdimar Örnólfsson Þrír hafa verið náðaðir Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Listakosning í fyrsta sinn frá 1958 Þarf að stoppa allt hjá FH Leiðtoginn þarf lýtaaðgerð og gervifót Akur sigraði í Eyjum Auka aðgengi að marijúana í lækningaskyni Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flokka Atlantshafsbandalagsríki í „góð“ og „slæm“ Fjölgunin ekki aðeins hjá ríki Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Hvað vildu þeir til Mexíkó? Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Andlát: Valdimar Örnólfsson Þrír hafa verið náðaðir Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 st