Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vopnahlé milli Ísrael og Líbanon framlengt

  • What: Israel-Lebanon ceasefire extended for three weeks
  • Impact: U.S. president announces extension of truce between Israel and Lebanon
Read Full Article →

Donald Trump Bandaríkjaforseti.AP / Alex Brandon Vopnahlé milli Ísrael og Líbanon verður framlengt um þrjár vikur. Þetta segir Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu sem hann birti á samskiptamiðlinum Truth Social í kvöld. Háttsettir fulltrúar Ísraela og Líbana funduðu með Bandaríkjaforseta, J.D. Vance varaforseta og Marco Rubio utanríkisráðherra í Washington í dag. Samkvæmt Bandaríkjaforseta gekk fundurinn vel og Bandaríkjastjórn ætlar að vinna með ríkisstjórn Líbanon og aðstoða hana við að vernda sig gegn Hezbollah-samtökunum. Trump sagði að innan tíðar muni Bandaríkin bjóða forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, og forseta Líbanon, Joseph Aoun, til fundar í Bandaríkjunum.

Share this article