Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tak­marka bandaríska fjár­festingu í tækni­fyrir­tækjum

  • What: China restricts foreign investment in tech companies
  • Impact: Regulatory actions affecting foreign tech investments in China
Read Full Article →

Stjórnvöld í Kína hyggjast takmarka aðgang helstu tæknifyrirtækja landsins, þar á meðal sprotafyrirtækja á sviði gervigreindar, að fjármagni frá bandarískum fyrirtækjum og fjárfestum, samkvæmt heimildarmönnum Bloomberg . Eftirlitsstofnanir í Kína hafa nýlega gefið þau tilmæli til nokkurra óskráðra tæknifyrirtækja að hafna fjárfestingu frá Bandaríkjunum í fjármögnunarlotum nema ef búið er að fá samþykki frá hinu opinbera. Gervigreindarfyrirtækin Moonshot AI og StepFun voru meðal fyrirtækja sem fengu slík tilmæli. Þá var Bytedance, eiganda TikTok, sagt að heimila ekki sölu á hlutabréfum félagsins á eftirmarkaði til bandarískra fjárfesta án þess að óska eftir leyfi frá eftirlitsaðilum. Með þessu horfa kínversk stjórnvöld til þess að koma í veg fyrir að bandarískir fjárfestar eignist hluti í öflugri tækni sem gæti varðað þjóðaröryggi Kína. Aðgerðirnar eru sagðar viðbragð kínverskra stjórnvalda við 2 milljarða dala kaupum Meta, móðurfélags Facebook, á gervigreindarsprotanum Manos árið 2025. Í kjölfarið réðust stjórnvöld í Kína í rannsókn á erlendri fjárfestingum í kínverskum fyrirtækjum, einkum tæknifyrirtækjum. Mörg kínversk tæknifyrirtæki hafa á síðustu árum sótt fjármagn frá bandarískum fjárfestum og fyrirtækjum. Bandarísk stjórnvöld hafa einnig lagt á takmarkanir á fjárfestingar bandarískra aðila í ákveðnum kínverskum fyrirtækjum á sviði gervigreindar og hálfleiðara með vísan til öryggissjónarmiða.

Share this article