Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Nú helli ég mér út í hestamennskuna

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 24.4.2026 | 21:10 Nú helli ég mér út í hestamennskuna Sólrún Silfá Guðmundsdóttir með Morgunblaðsskeifuna sem veitt hefur verið frá 1957. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Þessir tveir vetur hér á Hvanneyri hafa verið afar lærdómsríkur tími. Nú sný ég í sveitina og helli mér út í hestamennskuna,“ segir Sólrún Silfá Guðmundsdóttir, hestakona frá Sauðárkróki. Hún er handhafi Morgunblaðsskeifunnar sem veitt var á Hvanneyri í gær við hátíðlega athöfn og samkvæmt hefð sem nær aftur til ársins 1957. Þetta er verðlaunagripur sem nemendur á 2. ári í búfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands fá fyrir besta samanlagðan árangur á verklegum prófum í frumtamningum hrossa og III. áfanga í reiðmennsku. Nemendur þessir voru nú alls tíu; 8 konur og 2 karlar. Sýning á Mið-Fossum Hátíðin sem haldin var í gær heitir Skeifudagurinn . Reiðsýning var á Mið-Fossum á Andakíl, þar sem aðstaða LBHÍ í reiðkennslu og tamningum er. Að henni lokinni var haldið heim á Hvanneyri. Þar voru ýmsar viðurkenningar veittar, svo sem fyrir bóklegan árangur í reiðmennsku, framfarir í námi, ásetu á hesti og svo verðlaun til þess nema sem fær hæstu einkunn í fjórgangi á hrossi. Í þeirri list var einmitt keppt í gær á þjálfunarsetrinu á Mið-Fossum. Síðastnefndu verðlaunin, það er fyrir fjórganginn, heita Gunnarsbikarinn og eru kennd við Gunnar Bjarnason ráðunaut, sem var einn helsti áhrifamaðurinn í íslenskri hestamennsku á síðustu öld. Nemendur á 2. ári við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri sem nú fara til starfa eftir formlegt nám, orðnir margs vísir um tamningar og hestamennsku sem eru mikilvægar atvinnugreinar í dreifbýli. Kjarkur er góður „Ég hef alltaf verið viðloðandi hestamennsku og fór alltaf reglulega á bak,“ segir handhafi Morgunblaðsskeifunnar, Skagfirðingurinn Sólrún Silfá, sem nú er með unnusta sínum að setjast að á bænum Staðarbakka í Hörgárdal. „Fjölskylda mín átti gangnajálka sem svo voru kallaðir. Þegar ég var á hestabraut í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki fékk ég góðan hest, Kjark frá Ánastöðum, og hann var ég líka með hér á Hvanneyri. Þennan hest fékk ég að gjöf frá móður minni, Erlu Unni Sigurðardóttur. Kennslan hér á Hvanneyri var líka mjög markviss; sérstaklega þjálfun og tamningar. Sá árangur sem við náðum með trippum nú síðari hluta vetrar var mjög góður. Ég hlakka til þeirra verkefna sem fram undan eru og skjöldurinn, sem Morgunblaðsskeifan er á, verður stássgripur á stofuvegg.“ Hesturinn temur manninn, sagði Halla Tómasdóttir forseti Íslands, hér með Eyjólfi Guðmundssyni, deildarforseta við LBHÍ. Taktvisst tungumál Meðal góðra gesta á Skeifudeginum í gær var Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sem í ávarpi rifjaði upp kynni sín af hestamennsku forðum daga þegar hún var í sveit í Skagafirði á æskuárum. Þar sagði hún að hryssan Hörmung hefði stutt sig í gegnum margar krefjandi stundir sem með tímanum hefði tamið sig og sitt eðli. „Þótt ég sé enginn sérfræðingur þegar kemur að reiðmennsku veit ég að oft er það hesturinn sem temur manninn,“ sagði forseti og enn fremur: „Íslenski hesturinn fékk fyrr á öldum viðurnefnið þarfasti þjónninn en þegar ég hugsa um þessa þolgóðu skepnu á okkar dögum finnst mér orðið sendiherra enn nærtækara. Ég hef orðið vitni að því þegar erlendir gestir sjá íslenskan hest í fyrsta sinn þjóta fram hjá á tölti. Þar talar hann á sínu eigin taktvissa tungumáli og það skilja furðu margir.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sindri sigri frá úrslitaeinvíginu Lygilegur ellefu marka leikur í Mosfellsbæ Fylkir setti í annan gír í seinni Valur yfir í úrslitum - rautt spjald og hasar Jasmín hetjan í fyrsta leik Víkinga Umræðan Sterkur bær, björt framtíð Íslensk hagfræði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hermaður sagður hafa veðjað á handtöku Maduros Fást hvorki svör né samtal vegna Foreldrahúss Ríkari réttur til kosningaþátttöku Skólamál, uppbygging og samgöngur í brennidepli Mest lesið Í gær Í vikunni Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Ekið á konu á gangi við Skógarveg Hafa hótað og áreitt starfsfólk Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Auddi og Rakel opna dyrnar Nýjast á mbl.is » Sindri sigri frá úrslitaeinvíginu Lygilegur ellefu marka leikur í Mosfellsbæ Fylkir setti í annan gír í seinni Valur yfir í úrslitum - rautt spjald og hasar Jasmín hetjan í fyrsta leik Víkinga Umræðan Sterkur bær, björt framtíð Íslensk hagfræði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óttast ekki hótun Bandaríkjanna Heimsókn konungsins muni endurreisa sambandið Milljónir munu missa vinnuna Ekið á konu á gangi við Skógarveg Mest lesið Í gær Í vikunni Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Ekið á konu á gangi við Skógarveg Hafa hótað og áreitt starfsfólk Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Auddi og Rakel opna dyrnar

Share this article