Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Eyjakonur með góða innkomu í úrvalsdeild

Read Full Article →

Nýliðar Bestu deildar kvenna í fótbolta mættu til leiks í dag þegar fyrsta umferðin kláraðist. Nýliðar Gindavíkur/Njarðvíkur heimsóttu Val og Þór/KA tók á móti FH í sínum fyrsta leik í á nýjum heimavelli. Þá mættust Fram og ÍBV í Úlfarsárdal í miklum markaleik sem lauk með 3-4 sigri Eyjakvenna sem einnig eru nýliðar í deildinni. Taylor Marie Hamlett skoraði fyrsta mark dagsins fyrir fram strax á annarri mínútu leiksins, 1-0. Eyjakonur fylgdu því eftir með þremur mörkum áður en flautað var til hálfleiks. Fridrikka Marie Clementsen og Allison Grace Lowrey skoruðu hvor sitt markið og Emma Kate Young skoraði sjálfsmark. Alda Ólafsdóttir lagaði stöðuna fyrir Fram á 75. mínútu en Lowrey jók munin á nýjan leik fyrir ÍBV á 80. mínútu, 2-4. Hamlett skoraði svo sárabótarmark fyrir Fram á 90. mínútu og lokatölur 3-4 fyrir nýliða ÍBV. Rautt á Hlíðarenda Arnfríður Auður Arnarsdóttir kom Valskonum yfir á 15. mínútu en sex mínútum síðar skoraði Faith Romine glæsilegt jöfnunarmark fyrir Grindavík/Njarðvík þegar hún smellti bolatnum í þaknetið. Nýliðarnir spiluðu vel en það voru hins vegar Valskonur sem fundu sigurmark á 66. mínútu þegar Ísabella Sara Tryggvadóttir kom liðinu í 2-1. Maci Nicole Teater fékk rautt spjald fyrir að toga í hár Kimberley Dóru Hjálmarsdóttur í Val í uppbótartíma. Allt jafnt fyrir norðan Loks mættust Þór/KA og FH á nýjum heimavelli þar sem liðin skildu jöfn 1-1. Thelma Lóa Hermannsdóttir kom Hafnfirðingum yfir á 9. mínútu þegar hún hafði gott pláss og afgreiddi boltann í netið, 1-0. Talsverð bið var á jöfnunarmarkinu því það kom á 90. mínútu þegar Erin Flurey skilaði boltanum í netið. 1-1 urðu lokatölur og liðin taka hvort sitt stigið.

Share this article