Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Viðsnúningur Eyjakvenna skilaði sigri gegn Víkingum

Read Full Article →

ÍBV og Víkingur mættust í eina leik dagsins í Bestu deild kvenna í fótbolta. Leikið var í Vestmannaeyjum þar sem sólin skín en vindurinn lét segja til sín. Bæði lið unnu fyrstu leiki sína á tímabilinu, Víkingur hafði betur gegn Stjörnunni og nýliðar ÍBV unnu Fram. Það voru Víkingar sem komust yfir í dag með marki Bergdísar Sveinsdóttur úr vítaspyrnu á 21. mínútu. Skömmu síðar var Jasmín Erla Ingadóttir búin að tvöfalda forystu Víkinga og 2-0 stóð í hálfleik. Vindarnir snerust hins vegar í seinni hálfleik. Avery Vander Ven minnkaði muninn fyrir Eyjakonur á 50. mínútu og svo gott sem strax í næstu sókn jafnaði Olga Sevcova metin, 2-2. Ekki batnaði útlit Víkinga þegar Kristín Erla Johnson fékk sitt annað gula spjald og var rekin af velli eftir um klukkutíma leik. Liðsmuninn nýtti ÍBV sér og Allison Clark skoraði sigurmark þeirra á 83. mínútu. Það eru því Breiðablik og ÍBV sem eru einu tvö liðin sem hafa unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu.

Share this article