Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 8 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Fyrr­ver­andi hús­freyja á Bakka­koti er látin Brynja Dögg Friðriksdóttir Bakkakot. Kveikur / Ingvar Haukur Guðmundsson Þóra Elísabet Bernódusdóttir, fyrrverandi húsfreyja á fósturheimilinu Bakkakoti, lést á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli 18. apríl sl. Greint var frá andláti hennar í Morgunblaðinu í dag. Fjallað var um aðstæður á Bakkakoti í fréttaskýringarþættinum Kveik fyrr á þessu ári. Í þættinum lýstu nokkrir menn sem dvöldu á Bakkakoti sem börn harðræði af hendi Þóru í Bakkakoti. Fyrir 49 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Linnu­laus­ar árásir á Dnipro Átta voru drepnir í miklum árásum Rússa á borgina Dnipro í Úkraínu. 49 særðust í árásunum sem eru þær mestu sem hafa verið gerðar á borgina. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Körfubolti Flautukarfa í fram­leng­ingu og Stjarn­an með pálm­ann í hönd­un­um Stjarnan og Tindastóll mættust öðru sinni í undanúrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta í kvöld. Tindastóll leiddi með 19 stigum í hálfleik en háspenna var í fjórða leikhluta og úrslitin réðust í framlengingu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísrael gerir loft­árás­ir í suð­ur­hluta Líban­ons Mist Þormóðsdóttir Grönvold Ísraelsher gerði loftárásir á að minnsta kosti fjóra staði í suðurhluta Líbanons í dag. Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels fyrirskipaði árásir fyrr í dag í kjölfar meintra brota á vopnahléi af hálfu Hezbollah-samtakanna. Samkvæmt fréttaveitu AFP greina líbanskir ríkisfjölmiðlar frá því að árásir hafi verið gerðar á bæi í héruðunum Bint Jbeil, Tyre og Nabatieh. Í yfirlýsingu segir Ísraelsher skotmörkin hafa verið hernaðarinnviði í Hezbollah í suðurhluta landsins. Þar segir jafnframt að herinn hyggist halda aðgerðum sínum áfram. EPA / ILIA YEFIMOVICH / POOL Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Matur „Treyst­ið nefinu og leyfið bragð­lauk­un­um að leiða ykkur áfram“ Alþjóðlega diskósúpudeginum var fagnað á Garðatorgi í Garðabæ í dag. Deginum er ætlað að vekja athygli á matarsóun á bragðgóðan og skemmtilegan hátt. Um þrjátíu kíló af mat sem átti að henda fóru í súpugerðina. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Palestína Kjós­end­ur í Palest­ínu vonast eftir breyt­ing­um Kjósendur sem kusu í sveitarstjórnarkosningum í Palestínu í dag vonuðust eftir breytingum. Kjörstöðum var lokað klukkan fjögur að íslenskum tíma og kjörsókn jókst eftir hádegi. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hönnun Fram­leiða hljóð­demp­andi vegg­pan­ela úr end­ur­nýttu text­íl­efni Afgangs textílefni fær nýtt hlutverk hjá fyrirtækinu Flöff. Textíllinn er endurunninn í nýjan efnivið og fyrsta varan er væntanleg á markað. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vinnumarkaður Of­beldi gagn­vart rík­is­starfs­mönn­um al­gengt vanda­mál Formaður BSRB segir marga opinbera starfsmenn mæta aðgerða- og úrræðaleysi þegar þeir tilkynna um ofbeldi og áreitni í starfi. Mál starfsmanna Matvælastofnunar sé grafalvarlegt og stjórnvöld þurfi að taka málið föstum tökum. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Mik­il­væg­ur sigur Ars­en­al sem er aftur á toppn­um Arsenal tók á móti Newcastle í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í dag. Arsenal vann þar mikilvægan 1-0 sigur því liðið er sem stendur í harðri baráttu við Manchester City um Englandsmeistaratitilinn. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Miðausturlönd Reyna áfram að liðka fyrir frið­ar­við­ræð­um Brynjólfur Þór Guðmundsson Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, segir að ríkisstjórn sín sé staðráðin í að halda áfram að reyna að miðla málum milli Írana og Bandaríkjamanna. Í dag var ljóst að ekkert yrði af fyrirhuguðum fundahöldum með erindrekum ríkisstjórnar Bandaríkjanna og Írans. Utanríkisráðherra Írans hélt aftur heim eftir fund með pakistönskum ráðamönnum og Bandaríkjaforseti hætti við að senda sína erindreka til Pakistans. Sharif sagðist í dag hafa rætt við Masoud Pezeshkian, forseta Írans, og ítrekað vilja sinn til að liðka fyrir friði. Shehbaz Sharif tók á móti Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, í dag. AP/Pakistan Prime Minister Office / Uncredited Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Orban hættir á þingi Viktor Orban ætlar að hætta á þingi og einbeita sér að því að endurskipuleggja stjórnmálaflokk sinn, Fidesz, á landsvísu. Orban og Fidesz-flokkurinn töpuðu stórt í þingkosningunum í Ungverjalandi fyrr í mánuðinum. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti City fer í úrslit bik­ars­ins Anna Sigrún Davíðsdóttir Manchester City og Southampton mættust í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í dag. Það var djúpt á mörkum í leiknum en þegar þau komu þá komu þau á færibandi. Finn Azaz kom Southampton yfir á 79. mínútu. Það kveikti í City og Jérémy Doku jafnaði metinn þremur mínútum síðar, 1-1. Fimm mínútum eftir það átti hann svo sendingu á Nico González sem kom City yfir, tryggði þeim 2-1 sigur og sæti í úrslitaleiknum. Chelsea og Leeds eigast við í hinum undanúrslitaleiknum sem fer fram á morgun. Nico Gonzalez og Matheus Nunes fagna sigurmarkinu. EPA / VINCE MIGNOTT Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Skjálfti upp á 3,2 í Bárð­ar­bungu Brynjólfur Þór Guðmundsson Jarðskjálfti sem var 3,2 að stærð varð í Bárðarbungu klukkan 14:34 í dag. Nokkuð algengt er að jörð skjálfi í Bárðarbungu. Síðasti skjálfti yfir 3 að stærð varð fyrir tæplega fjórum vikum, 31. mars. Hann var öllu stærri en skjálftinn í dag, 3,8 að stærð. Bárðarbunga. Safnmynd. RÚV / Einar Rafnsson Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Eyja­kon­ur með góða inn­komu í úr­vals­deild Þrír leikir voru á dagskrá Bestu deildar kvenna í dag. Báðir nýliðar deildarinnar mættu til leiks og Eyjakonur byrjuðu vel með sigri í miklum markaleik á móti 4-3. Valskonur höfðu betur gegn hinum nýliðum deildarinnar í Grindavík/Njarðvík, 2-1. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Allt jafnt hjá Gló­dísi og fé­lög­um í ein­víg­inu við Barc­el­ona Bayern München og Barcelona mættust í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í dag. Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í vörn Bayern. Liðin skildu jöfn 1-1 og því er úrslitaleikur í vændum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Heill­að­ist af land­inu og lærði ís­lensku upp á eigin spýtur Ungur maður frá Bandaríkjunum kenndi sér íslensku sjálfur með því að lesa íslenska fréttamiðla, Wikipedia og Vísindavefinn. Hann hefur þróað smáforrit sem tengir tungumálaáhugafólk saman. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Sara Sif læsti mark­inu og odda­leik­ur í vændum Anna Sigrún Davíðsdóttir Haukar tóku á móti ÍBV í fjórða leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handbolta. Haukar unnu 26-23 og því fer viðureignin í oddaleik sem fram fer í Vestmannaeyjum á þriðjudag. Mikið jafnræði var meðal liðanna en Haukar leiddu með einu í hálfleik, 11-10. Haukakonur unnu upp forskot um miðjan síðari hálfleik og þrjú mörk skildu liðin að þegar stundarfjórðungur var eftir, 19-16. Hafnfirðingar héldu þeim mun allt til loka og fögnuðu loks þriggja marka sigri, 26-23. Sara Sif Helgadóttir gerði gæfumuninn í dag þvi varði 21 skot í marki Hauka og endaði með 48% markvörslu. Sara Sif átti stórleik í dag. RÚV / Mummi Lú Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Meiri and­staða við borg­ar­línu fjarri mið­borg­inni Marktækur munur er á stuðningi við borgarlínuna eftir hverfum í Reykjavík. Því lengra frá miðborginni, því meiri er andstaða íbúa samkvæmt nýrri rannsókn. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Örkuðu yfir Öxi og krefj­ast sam­göngu­bóta Stelpurnar í 10. bekk á Djúpavogi örkuðu yfir fjallveginn um Öxi í dag og kröfðust samgöngubóta til Egilsstaða. Þær ætla í Menntaskólann á Egilsstöðum næsta haust og líst illa á að keyra holóttann veginn þegar þær fá bílpróf. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Liver­pool upp í fjórða Fimm leikir eru á dagskrá ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta í dag. Fjórum er lokið og Liverpool er nú í fjórða sæti eftir sigur á Crystal Palace. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Malí Spreng­ing­ar og skot­ríð dynja á höf­uð­borg Malí Átök hafa brotist út í Bamako, höfuðborg Malí. Talið er árásirnar séu þær umfangsmestu af hálfu vígahópa jíhadista í fjölda ára. Afríkusambandið hefur fordæmt árásirnar. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Ekkert verður af funda­höld­um Kus­hners og Witkoffs með Írönum Bandaríkjaforseti hætti í dag við að senda tvo erindreka sína til Pakistans til viðræðna við Írana. Utanríkisráðherra Írans ræddi við pakistanska ráðamenn í dag og hélt svo aftur til Írans. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Kanna fjár­stuðn­ing við Matt­hildi Heilbrigðisráðuneytið hefur óskað frekari upplýsinga frá Matthildarsamtökunum áður en ákvörðun verður tekin um fjárframlög. Samtökin sem vinna að skaðaminnkun gætu þurft að hætta starfsemi vegna skorts á fjármagni. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Kjara­deilu flug­manna og Ic­elandair vísað til rík­is­sátta­semj­ara Brynjólfur Þór Guðmundsson Kjaradeila flugmanna hjá Icelandair er komin á borð ríkissáttasemjara. Samtök atvinnulífsins ákváðu fyrir hönd flugfélagsins að vísa samningaviðræðum til ríkissáttasemjara. Samningur SA og Icelandair við Félag íslenskra atvinnuflugmanna rann út í lok september. Ekki hefur náðst samkomulag um nýjan samning. Eftir að málinu var vísað áfram er ljóst að næstu skref verða á forræði ríkissáttasemjara sem stýrir viðræðunum hér eftir. Þota Icelandair. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Borgarbyggð Þrjú af fjórum fram­boð­um í Borg­ar­byggð al­far­ið á móti upp­bygg­ingu vind­orku­vers Þrír af fjórum flokkum sem bjóða fram í Borgarbyggð eru á móti uppbyggingu vindorkuvers í sveitarfélaginu. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Lyftingar Erla sló per­sónu­legt met á EM Þórbergur Ernir Hlynsson og Erla Ágústsdóttir kepptu á EM í ólympískum lyftingum í Batumi í Georgíu. Erla bætti þá sitt persónulega met í samanlagðri þyngd um tvö kíló. Þórbergur gerði vel og endar að líkindum í 21. sæti. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjónvarp Djamm­vænn glaðn­ing­ur leynd­ist í af­mæl­isköku Vik­unn­ar Ragnhildur Stein

Share this article