Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ákærður fyrir að hafa grætt 50 milljónir á hand­töku Maduros

  • What: A U.S. military official is charged with using classified info to bet on Maduro's removal
  • Impact: Financial crime, not directly affecting IT security
Read Full Article →

Bandarískir saksóknarar hafa ákært virkan her­mann í bandaríska hernum fyrir að hafa notað trúnaðar- og leyni­legar upp­lýsingar til að veðja á hand­töku Nicolásar Maduro, for­seta Venesúela, á spá­markaðnum Polymar­ket. Saksóknarar segja manninn hafa hagnast um rúm­lega 409 þúsund dali á við­skiptunum, sem sam­svarar um 50 milljónum króna. Sam­kvæmt ákæru er maðurinn, Gann­on Ken Van Dyke, sagður hafa tekið þátt í skipu­lagningu að­gerðarinnar sem leiddi til hand­töku Maduros í janúar. Hann hafi á meðan hann hafði að­gang að leyni­legum upp­lýsingum lagt um 13 veðmál að and­virði rúm­lega 33 þúsund dala á markaði sem vörðuðu meðal annars veru bandarískra her­afla í Venesúela og hvort Maduro yrði farinn frá völdum fyrir lok janúar. Yfir­völd segja að hagnaðurinn hafi numið 409.881 dal. Að því loknu hafi Van Dyke flutt megnið af vinningnum í er­lenda dul­ritunar­geymslu og síðar yfir á nýjan net­miðlara­reikning. Einnig er því haldið fram að hann hafi reynt að fela slóð sína eftir að fjölmiðlar og sam­félags­miðlar fóru að fjalla um óvenju­leg við­skipti tengd Maduro-samningum á Polymar­ket. Van Dyke var ákærður fyrir brot á lögum um hrávöru­markaði, net­svik og ólög­mæt fjár­mála­við­skipti, auk annarra brota sem tengjast mis­notkun trúnaðar­upp­lýsinga stjórn­valda. Hann var leiddur fyrir dómstól í Norður-Karó­línu, en málið hefur verið fært til al­ríkis­dómstóls á Man­hattan. Todd Blanche, starfandi dóms­málaráðherra Bandaríkjanna, sagði í yfir­lýsingu að her­mönnum væri treyst fyrir leyni­legum upp­lýsingum til að þeir gætu sinnt verk­efnum sínum af öryggi og skil­virkni, en þeim væri óheimilt að nota slíkar upp­lýsingar sér til fjár­hags­legs ávinnings. Jay Cla­yton, saksóknari suðurumdæmis New York, sagði jafn­framt að spá­markaðir væru ekki griðar­staður fyrir þá sem vildu hagnast á mis­notuðum trúnaðar- eða leyni­upp­lýsingum. Polymar­ket sagði í yfir­lýsingu á X að fyrir­tækið hefði vísað málinu til dóms­málaráðu­neytisins þegar það varð vart við notanda sem hefði átt við­skipti á grund­velli leyni­legra stjórn­valds­upp­lýsinga. Fyrir­tækið sagðist hafa unnið með rannsókninni og að inn­herja­við­skipti ættu engan stað á markaðnum. Financial Times segir málið varpa ljósi á nýja og ört vaxandi spurningu um spá­markaði: hvort að­gengi að slíkum mörkuðum geti skapað ný tækifæri til mis­notkunar á trúnaðar­upp­lýsingum, ekki síst þegar um er að ræða geópólitíska at­burði og hernaðarað­gerðir.

Share this article