Security News

Cybersecurity news aggregator

🔄
INFO Updates Viðskiptablaðið

Camilla ráðin framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Lucinity

  • What: Lucinity appoints new CEO
  • Impact: AI-powered fraud detection solutions for financial institutions
Read Full Article →

Lucinity, Human AI-fyrirtæki á sviði varna gegn fjármálaglæpum, hefur ráðið Camillu Hillerup í starf framkvæmdastjóra rekstrarsviðs. Camilla kemur úr stjórnendateymi Microsoft Nordic, þar sem hún starfaði í níu ár. Í starfi sínu mun Camilla bera ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og þróun rekstrarmódels Lucinity, Human AI Operations. Ráðningin kemur í kjölfar þess að Lucinity kynnti nýverið Human AI Powered FinCrime Operations, heildstæða þjónustulausn sem gerir fjármálastofnunum kleift að innleiða AI-drifnar aðgerðir gegn fjármálaglæpum með öruggum og skilvirkum hætti. Þá tók Daníel Pálmason einnig nýverið við starfi forstjóra félagsins. Sjá einnig Lucinity og Creditinfo í samstarf gegn peningaþvætti „Norrænir bankar hafa að mestu leyst greiningarþáttinn en rannsóknarálagið sem fylgir hefur orðið óviðráðanlegt. Umfangið, flækjustigið og eftirlitskröfurnar voru aldrei hönnuð til að byggja eingöngu á mannafla einum og sér. Það er einmitt það vandamál sem Lucinity leysir – og tækifærin fram undan eru veruleg,“ segir Camilla. Hún er jafnframt menntaður lögfræðingur og situr í stjórn Digital Workforce hjá Dansk IT, þverfaglegs vettvangs sem mótar stefnu Danmerkur í uppbyggingu stafrænnar hæfni til framtíðar. „Camilla býr yfir nákvæmlega þeirri reynslu sem við þurfum á þessu vaxtarskeiði. Hún hefur leitt umbreytingar á stórum skala, starfað á mörkum tækni og mannauðs á tímum mikilla breytinga og byggir á þeirri sannfæringu að framúrskarandi rekstur og sterk menning styðji hvort annað fremur en að togast á,“ segir Daníel Pálmason, forstjóri Lucinity.

Share this article