- What: A man exploited a system flaw at Arion Bank to transfer 160 million ISK
- Impact: The bank recovered most of the funds, but the incident highlights vulnerabilities in financial systems
Rúmenskur maður nýtti sér villu í kerfi Arion banka í apríl til þess að millifæra um 160 milljónir króna á eigin bankareikninga. Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka., segir manninn hafa verið í viðskiptum við bankann og að hann staddur á Íslandi þegar meint brot voru framin. Hann hafi ekki verið sérstakur kunnáttumaður varðandi tölvur eða viðskipti. Upphæðin hefur verið endurheimt að mestu leyti. Haraldur segir manninn hafa átt í viðskiptum við bankann og að hann hafi verið staddur á Íslandi þegar brotin voru framin. Hann hafi ekki verið sérstakur kunnáttumaður varðandi tölvur eða viðskipti. Keypti bíl og flúði land Vísir sagði fyrst frá málinu í gær. Lögreglan í Rúmeníu hafi handtekið mann á fertugsaldri, á grundvelli evrópskar handtökuskipunar, vegna rannsóknar íslenskra yfirvalda á fjársvikum og peningaþvætti. Maðurinn hafi nýtt sér kerfisvillu í bankanum, tekist að endurtaka tiltekna aðgerð oftar en hann hefði átt að geta og hafði þannig upphæðina af bankanum með ólögmætum hætti. Í frétt í morgun segir Vísir frá því að hinn grunaði hafi keypt sér bíl og farið af landi brott með Norrænu og ekið rakleitt til Rúmeníu. Þar var hann handtekinn og verður framseldur hingað til lands. Engin merki um að fleiri hafi nýtt sér villuna Haraldur segir í samtali við fréttastofu að engin merki séu um að fleiri hafi nýtt sér villuna. Málinu svipar um margt til þess þegar viðskiptavinir Landsbanka nýttu sér kerfisvillu hjá Reiknistofu bankanna en málin tengjast ekki.