Bandaríska bíófyrirtækið Regal Cinemas rukkaði bíógesti nýlega 50 dali, eða um 6.100 krónur, fyrir bestu sætin á frumsýningu myndarinnar Dune: Part Three. Þetta kemur fram á vef WSJ en þar er fjallað um verðþróun fyrir bíóferðir í Bandaríkjunum undanfarin ár. Kvikmyndahús hafa verið dugleg að hækka verð þar í landi þrátt fyrir gagnrýni en árleg miðasala hefur dregist saman um meira en þriðjung frá því fyrir heimsfaraldur. Það er orðið sífellt algengara að sjá hærra miðaverð á eftirsóttar myndir og hafa kvikmyndahús tekið upp svipaða verðlagningarstefnu og sést í flug- og hótelgeiranum. Um 17% af öllum seldum bíómiðum í fyrra voru fyrir lúxussali, miðað við 13% árið 2021. Sjá einnig Miðasala í bíóhúsum nam 1,5 milljörðum króna Meðalmiðaverð í lúxussali í Bandaríkjunum er um 18 dalir, eða um 2.200 krónur, en í stórborgum eins og New York og Los Angeles er miðaverðið um 30 dalir, eða um 3.700 krónur. Bandaríkjamenn greiða að meðaltali 12,75 dali, eða 1.550 krónur, fyrir hvern bíómiða og hefur almennt miðaverð fylgt verðbólgu þar í landi. Sala á poppi, drykkjum og varningi hefur hins vegar aukist um 220% á síðustu 20 árum. Stjórnendur innan kvikmyndageirans í Hollywood hafa hins vegar áhyggjur af því að hækkandi miðaverð og aukin áhersla á lúxussali séu að breyta bíóferðum úr reglulegri og ódýrri afþreyingu í það að verða dýr og sjaldgæf ákvörðun.