Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

25 milljarðar að verða nýja normið

Read Full Article →

Verð á allra dýrastu íbúðarfasteignum heims hefur hækkað hratt á síðustu árum. Financial Times (FT) greinir frá því að 200 milljóna dollara múrinn sé nú æ oftar rofinn en það eru 25 milljarðar króna. Samkvæmt alþjóðlegu fasteignasölunni Knight Frank, sem sérhæfir sig í sölu dýrra eigna, hafa 13 íbúðareignir selst á 200 milljónir dala eða meira frá árinu 2011, meðal annars í London og Mónakó. Á sama tíma hefur fjöldi milljarðamæringa í heiminum aukist hratt og er nú yfir 3.000, samkvæmt Forbes. Þessi eign í Palm Beach í Flórída er til sölu á 205 milljónir dollara eða 26 milljarða króna. Húsið var áður í eigu Aldo Gucci. Fyrir marga í þessum hópi eru lúxus-fasteignir stöðutákn frekar en fjárfesting, að sögn sérfræðinga, sem FT ræddi við. Þeir líta á þær á svipaðan hátt og einkaflugvélar eða snekkjur. Í Bandaríkjunum hafa um 60 íbúðarhús selst fyrir meira en 100 milljónir dala, eða 12,5 milljarða króna, frá 2007, þar af fjögur yfir 200 milljónir. Griffin borgaði 30 milljarða króna fyrir íbúð í New York fyrir sjö árum. © Aðsend / EPA (Aðsend / EPA) Eitt þekktasta dæmið er þakíbúð milljarðamæringsins Kenneth Griffin, stofnanda og forstjóra fjárfestingarfyrirtækisins Citadel í New York. Hann borgaði 238 milljónir dollara, 30 milljarða króna, fyrir eignina árið 2019. Samkvæmt Knight Frank hefur markaður með dýrar lúxuseignir (e. super-prime market) tvöfaldast á nokkrum árum. Árið 2019 nam veltan á þessum markaði 18,9 milljörðum króna en í fyrra nam hún 40,5 milljörðum. Sérfræðingar telja því ekki ólíklegt að næstu árin verði slegið nýtt met og að fyrsta fasteignin yfir 300 milljónum dollara, 38 milljarða króna, verði seld. Í húsi Resnick-hjónanna í Aspen eru 18 herbergi og 20 baðherbergi. Í fyrra settu hjónin Lynda og Stewart Resnick, eigendur The Wonderful Company, eign sína í Colorodo á sölu og er ásett verð 300 milljónir dollara. Eignin, Little Lake Lodge, er í Aspen. Hún stendur á 72 hektara lóð og er um 3.000 fermetrar. Í húsinu eru 18 herbergi og 20 baðherbergi.

Share this article