Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Yfir milljarður fyrir há­degis­verð með Buf­fett

Read Full Article →

Ónafngreindur aðili bauð hæst í góðgerðaruppboði um að fá að snæða hádegismat með goðsagnakennda fjárfestinum Warren Buffett. Viðkomandi bauð yfir 9 milljónir dala eða yfir 1,1 milljarð króna. WSJ greinir frá. Sigurvegari uppboðsins mun hitta stjórnarformann fjárfestingarfélagsins Berkshire Hathaway í Omaha borg í Nebraskafylki þann 24. júní næstkomandi. Með þeim verða Steph Curry, leikmaður körfuboltaliðsins Golden State Warriors, og eiginkona hans, frumkvöðullinn Ayesha Curry. Hæstbjóðandinn fær að taka allt að sjö gesti með sér. Fimm aðilar tóku þátt í uppboðinu á eBay, sem hófst með tilboði að fjárhæð 50 þúsund dali. Meðal annarra muna sem boðnir voru upp voru eins dollara seðill áritaður af Buffett sem seldist á 9.100 dali, eða 1,1 milljón króna, og árituð Steph Curry treyja sem seldist á 1.548 dali eða um 190 þúsund króna. Sjá einnig 2,5 milljarðar fyrir hádegismat með Buffett Hæsta boðið í hádegisverðinn í ár var umtalsvert lægra en í síðasta sinn sem sambærilegt uppboð fór fram árið 2022 þegar ónafngreindur aðili greiddi 19 milljónir dala eða 2,5 milljarða króna fyrir hádegisverð með Buffett. Hinn 95 ára gamli auðkýfingur hefur nú hjálpað til við að safna yfir 50 milljónir dala, eða yfir 6,1 milljarð króna, í gegnum tíðina fyrir Glide góðgerðarsamtökin sem styður við heimilislaust fólk. Samtökin voru mikið hugðarefni Susie Buffett, fyrstu eiginkonu Warren Buffett, sem lést árið 2004. Warren Buffett rakti ástæðu þess að hann hefur ekki gefið kost á að gefa hádegisverð með sér undanfarin þrjú ár til þess að hann hafi fundið fyrir orkuleysi þegar hann var orðinn 92 ára. Hann sagði þó boðskap átaksins enn vera sér mikilvægt.

Share this article