Bandaríska fjárfestingafélagið Berkshire Hathaway tilkynnti í morgun um að það myndi hefja endurkaup í fyrsta sinn frá árinu 2024. Á sama tíma var greint frá því að Greg Abel, sem tók við sem forstjóri Berkshire af Warren Buffett um áramótin, hefði keypt hlutabréf í félaginu fyrir 15 milljónir dala, eða sem nemur tæplega 1,9 milljörðum króna. Kaupverið samsvarar árslaunum Abel eftir skatta. Hann tjáði CNBC að hann hyggist áfram nýta heildarlaun sín til að kaupa hlutabréf í Berkshire á hverju ári á meðan hann er við stjórnvölinn, sem hann segist vona að verði næstu 20 árin. Kaup forstjórans fylgja í kjölfar þess að sumir markaðsaðilar höfðu sett spurningamerki við hvort hinn 62 ára gamli Abel væri með jafnmikla beina hagsmuni af því að félaginu gangi vel. Forveri hans, Buffett, á um 37,5% af A-bréfum félagsins, sem samsvarar um 99,5% af auðæfum hans. Abel sagði að sér þætti afar mikilvægt að samtvinna hagsmuni sína og hluthafa félagsins. Hann hafi þegar átt hlutabréf í Berkshire og horft til þess að stækka hlut sinn. Fyrir kaupin átti hann hlutabréf í Berkshire að andvirði 164,4 milljónir dala, eða um 20,5 milljarðar króna. Gengið 10% frá hæsta toppi Berkshire er með þá stefnu að forstjóri félagsins er heimilt að ráðast í endurkaup ef hann telur, að höfðu samráði við stjórnarformanninn, að markaðsverð hlutabréfa félagsins sé undir innra virði bréfanna, að því er segir í ársreikningi sem birtur var um helgina. Gengi hlutabréfa Berkshire í B-flokki er tæplega 10% lægra en þegar það náði hæstu hæðum í tæplega 540 dölum á hlut í maí síðastliðnum. Hlutabréfaverð félagsins lækkaði um 5% í byrjun vikunnar, eftir birtingu ársuppgjörs þar sem greint var frá því að rekstrarhagnaður félagsins hafi dregist saman um nærri 30% á fjórða ársfjórðungi, einkum vegna eignarhalds í vátryggingafélögum. Lesa má bréf Abel til hluthafa hér .