Milljarðamæringurinn og fyrrum stjórnarformaður og forstjóri Starbucks, Howard Schultz, hefur keypt lúxusþakíbúð í Flórída fyrir 44 milljónir dala, eða 5,5 milljarða króna. Á vef WSJ segir að íbúðin sé staðsett við Four Seasons Private Residences í Surfside í Flórída. Kaupin koma í kjölfar tilkynningar frá Schultz á Linkedin þar sem hann greindi frá því að hann og eiginkona hans, Sheri, hefðu flutt frá Seattle til Miami. Þakíbúðin, sem var sett á sölu í nóvember 2024, er með útsýni yfir Atlantshafið og er 500 fermetrar að stærð. Hún er með fimm svefnherbergjum, garði, þakverönd og einkabílastæði í kjallara. Upphaflega verðmat íbúðarinnar var 55 milljónir dala en lækkaði svo niður í 49,9 milljónir. Samkvæmt fasteignaskrám keypti félagið Stockbridge Holdings íbúðina árið 2018 fyrir 18 milljónir dala. Svæðið sem hýsir íbúðina, Four Seasons Private Residences, er staðsett rétt norðan við Miami Beach. Aðrir þekktir einstaklingar úr bandarísku atvinnulífi hafa einnig fjárfest á svæðinu en tæknifrumkvöðullinn Daniel Nadler keypti þar fullinnréttaða þakíbúð fyrir 38,2 milljónir dala. Sjá einnig Myndir: Zuckerberg og Chan kaupa 23 milljarða höll í Miami Larry Page, Sergey Brin og Mark Zuckerberg hafa einnig keypt fasteignir á Miami-svæðinu meðal annars vegna áhyggja af nýjum auðlegðarskatti í Kaliforníu. Howard Schultz er sjálfur þekktastur fyrir að hafa gjörbreytt Starbucks úr lítilli kaffibaunaverslun yfir í alþjóðlega kaffikeðju. Hann hætti bæði sem forstjóri og stjórnarformaður árið 2023 en hafði haft mikil áhrif innan fyrirtækisins. Hjónin Howard og Sheri hafa búið í Seattle í áratugi þar sem höfuðstöðvar Starbucks eru. Í færslu sinni sagðist hann hafa orðið vitni að ótrúlegum breytingum í borginni og vonaðist til að Washington-ríki yrði áfram staður þar sem viðskipti og frumkvöðlar gætu dafnað.