Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Myndir: Zucker­berg og Chan kaupa 23 milljarða höll í Miami

Read Full Article →

Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, og eiginkona hans, Priscilla Chan, hafa greitt 170 milljónir dollara, jafnvirði rúmlega 23 milljarða króna, fyrir glæsihýsi á hinni eftirsóttu einkaeyju Indian Creek í Miami. Samningurinn gekk formlega í gegn á mánudaginn samkvæmt fasteignaskrá svæðisins en framkvæmdir við húsið standa enn yfir. Wall Street Journal greinir frá þessu. Aldrei hefur verið borgað hærra verð fyrir eign í Miami-Dade sýslu og í raun er eignin á meðal þeirra dýrustu í Bandaríkjunum. Nýja hús Zuckerberg og Chan er óklárað. Dýrasta eignin var íbúð sem milljarðamæringurinn Ken Griffin, stofnandi og forstjóri fjárfestingarfyrirtækisins Citadel , keypti í New York árið 2019 en íbúðin kostaði 238 milljónir dollara. Dýrasta eignin í Flórída var seld í fyrra en það er strandsetur í borginni Naples, sem seldist fyrir 225 milljónir dollara. Dýrasta eign Bandaríkjanna er íbúði, sem er á efstu fjórum hæðum 220 Central Park South-skýjakljúfsins. Fasteignin kostaði 238 milljónir dollara árið 2019. 3 þúsund fermetra höll með leynigöngum Seljendur eignarinnar, sem Zuckerberg og Chan keyptu, eru lýtalæknirinn Aaron Rollins og eiginkona hans, fasteignasalinn Marine Rollins. Rollins hjónin greiddu rúmlega 30 milljónir dollara fyrir tæplega tveggja ekru lóð árið 2020 og hafa síðan unnið að hönnun og byggingu glæsihýsisins. Teikning af hús Zuckerberg og Chan þegar það verður fullklárað. Samkvæmt áætlunum á húsið að vera um tæplega 3 þúsund fermetrar að stærð, með níu svefnherbergjum, bryggju og sundlaug. Meðal fyrirhugaðra þæginda eru líkamsræktarsalur, hárgreiðslustofa, nuddherbergi, 1.500 lítra fiskabúr og bókasafn með leynigöngum. Ekki fylgir sögunni hvert þessi göng liggja. Eignin var sett á sölu í nóvember 2025 og var ásett verð 200 milljónir dollarar. Markaðurinn í Miami ekki lengur undirverðlagður Zuckerberg og Chan tjáðu sig ekki um kaupin. Fasteignasalar eignarinnar, Danny og Jill Hertzberg hjá Coldwell Banker Realty, vildu ekki staðfesta kaupandann en sögðu viðskiptin endurspegla mikla umbreytingu fasteignamarkaðarins í Miami frá upphafi Covid-faraldursins. „Fyrir heimsfaraldurinn var fasteignamarkaðurinn í Miami undirverðlagður,“ sagði Danny Hertzberg. „Þeir tímar eru liðnir.“ Indian Creek er lokuð einkaeyja í Miami, þar sem allar eignir liggja beint að sjó. Þar hafa þekktir auðmenn á borð við íþróttastjörnuna Tom Brady og fjárfestirinn Carl Icahn fest kaup á fasteignum. Aðdráttaraflið felst í miklu öryggi, einkalífi og útsýni.

Share this article