Innlent | Morgunblaðið | 11.2.2026 | 14:00 „Mjög ánægð að fá öll börnin saman aftur“ Leikskólinn hefur verið lokaður frá því í október 2022 og lokunin því staðið yfir í þrjú og hálft ár. mbl.is/sisi Eftir þriggja og hálfs árs bið verður loks tekið á móti börnum á leikskólanum Grandaborg síðar í mánuðinum. „Við erum að flytja núna 20. febrúar inn á Grandaborg og fyrstu börnin koma mánudaginn 23. febrúar,“ segir Erna Guðlaugsdóttir, leikskólastjóri Hagaborgar og núna Grandaborgar, en fv. leikskólastjóri Grandaborgar, Helena Jónsdóttir, er komin í önnur verkefni. „Ég verð leikskólastjóri Grandaborgar alla vega fram á haustið,“ segir Erna. Lokað í nærri þrjú og hálft ár Leikskólinn hefur verið lokaður vegna viðgerða í næstum þrjú og hálft ár og börnunum var dreift á mismunandi leikskóla, en mörg þeirra eru nú komin á næsta skólastig. Erna segir að börnin sem komi núna á Grandaborg séu börnin sem voru á Hagaborg, sem var lokað í sumar, og einnig séu einhver börn sem byrjuðu á Grandaborg. Börnin sem koma nú til Grandaborgar hafa verið á þremur stöðum frá því í haust. „Við höfum verið með elstu börnin í aukahúsi á lóð Hagaborgar og þ. á m. eru Grandaborgarbörnin sem koma núna til baka. Síðan höfum við verið með 30 börn í Ármúla, sem flest eru frá Hagaborg, og svo erum við líka með 15 börn í Vörðuborg, sem er líka að koma hingað,“ segir Erna. Gera það besta úr stöðunni Erna segir að vissulega hafi þessi langa lokun á Grandaborg og núna lokun Hagaborgar haft í för með sér mikið rask fyrir fjölskyldurnar og börnin. „En við höfum gert það besta úr stöðunni og haldið í faglegt starf á þessum tímabundnu stöðum.“ Hún segir að þegar Hagaborg hafi verið lokað síðasta sumar hafi fyrst verið farið með 30 börn í Barónsborg en það hafi ekki gengið vel og þá hafi fengist skrifstofuhúsnæði í Ármúlanum sem hafi gefist vel. „Það var stórt húsnæði sem við settum upp með þarfir barnanna í huga. Það var aðlagað leikskólastarfi og þar er garður fyrir börnin og mikið rými og við erum með t.d. dúkkukróka, mottur og leikefni fyrir börnin.“ Það er ekki víst að foreldrar séu þó sáttir við þessa lausn, enda mikill munur að fara með barn í leikskóla í sínu hverfi eða keyra úr Vesturbænum upp í Ármúla með tilheyrandi traffík við háskólasvæðið. Erna segir að það verði þó allir fegnir að Grandaborg hefji starfsemi aftur. „Við erum mjög ánægð að fá öll börnin saman aftur.“ Endalausar framkvæmdir Þegar fulltrúar Reykjavíkurborgar eru spurðir um hvað hafi valdið þessari löngu lokun Grandaborgar, segja þeir marga þætti spila þar inn í. Þar sem leikskólanum hafi verið lokað vegna lélegra loftgæða hafi hönnunarferlið bæst við tímann, en því sé yfirleitt lokið áður en skólum er lokað. Verktaki kom því ekki að málinu fyrr en meira en ári eftir lokun, eða í mars 2024, eftir að hönnun og þarfagreining hafði farið fram. Í ferlinu kom fleira upp, eins og að skipta þurfti um þak skólans, og síðan hætti verktaki áður en verki var lokið og leita þurfti tilboða til að ljúka því. Það hafi því margar ófyrirséðar ástæður tafið framkvæmdir. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér „Við erum niðurbrotin“ Jóhann Berg kallaður inn í landsliðið Uppgangur „niðurrifsstjórnmála“ verður í brennidepli Allt var stöðvað: „Aldrei séð neitt þessu líkt“ „Mjög ánægð að fá öll börnin saman aftur“ ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Níu drepnir í skotárás í Kanada Skimun fyrir ofbeldi gegnir lykilhlutverki Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson „Við erum niðurbrotin“ Jóhann Berg kallaður inn í landsliðið Uppgangur „niðurrifsstjórnmála“ verður í brennidepli Allt var stöðvað: „Aldrei séð neitt þessu líkt“ „Mjög ánægð að fá öll börnin saman aftur“ ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Hagsmunavarsla eflir sendiráðið Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Ná nákvæmari vöktun á landinu Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson