Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Myndir: Grandaborg opnuð eftir 1.240 daga bið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 24.2.2026 | 17:52 Myndir: Grandaborg opnuð eftir 1.240 daga bið Börnin gengu glöð og kát frá Hagaborg yfir á Grandaborg í morgun. Orri Jóhannsson er hér skælbrosandi með gula húfu, fyrir miðri mynd. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Leikskólamál Leita húsnæðis fyrir leikskóla Gefa lítið fyrir gagnrýni stéttarfélaga Óttast að ný leið leggist þungt á vinnandi foreldra Svona er nýja Reykjavíkurleiðin 29% fyrirtækja fá starfsfólk seint úr fæðingarorlofi » Fleiri tengdar fréttir Eftir 1.240 daga eða tæplega þrjú og hálft ár var leikskólinn Grandaborg í Vesturbæ Reykjavíkur loks opnaður á ný dag eftir framkvæmdir. Gleðin skein úr andlitum barnanna sem marseruðu í morgun frá Hagaborg, þar sem mörg hafa verið í einhvern tíma, yfir á Grandaborg. Einhver þeirra eru að snúa aftur í gamla leikskólann sinn. Þau voru reyndar bara rétt um tveggja ára þegar Grandaborg var lokað í október 2022 og muna því líklega ekki mikið frá þeim tíma. Önnur eru upphaflega Hagaborgarbörn sem flytjast nú yfir á Grandaborg þar sem ráðast á í endurbætur á Hagaborg og leikskólinn verður lokaður á meðan. Frétt af mbl.is Stefnir í 3 og hálfs árs lokun á leikskólanum Þar sem Hagaborg var lokað að hluta hluta til síðasta sumar hefur stór barnahópur af leikskólanum verið í Vörðuborg og í skrifstofuhúsnæði í Ármúla, en þangað voru þau flutt eftir að reynt var að koma þeim fyrir á Barónsborg, þar sem í ljós kom að loftgæði voru ekki til fyrirmyndar. Þessi börn sameinuðust loks öll á Grandaborg í morgun. Hljómar allt frekar flókið, en við getum þá rétt ímyndað okkur raskið fyrir blessuð börnin og flækjustigið fyrir foreldra þeirra síðustu árin. Frétt af mbl.is Loka leikskóla vegna skólpmengunar Frétt af mbl.is „Mjög ánægð að fá öll börnin saman aftur“ Orri 5 ára loksins kominn heim Mörg barnanna sem hófu leikskólagöngu á Grandaborg eru auðvitað fyrir löngu komin í grunnskóla og náðu aldrei að komast aftur í leikskólann sinn. Um tíu barna hópur sem hóf leikskólagöngu haustið 2022 sneri hins vegar aftur á Grandaborg í dag, aðeins nokkrum mánuðum áður en skólaganga þeirra hefst, en þau munu útskrifast af leikskólanum í sumar. Um tíu börn sem hófu leikskólagöngu haustið 2022 á Grandaborg, snúa nú aftur á leikskólann sinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson Börnin hafa að minnsta kostið verið á tveimur öðrum leikskólum síðastliðin þrjú og hálft ár, fyrst í Ævintýraborgum við Nauthólsveg og svo á Hagaborg. Einhver jafnvel á fleiri stöðum. Orri Jóhannsson er eitt þessara barna. Hann er fimm ára frá því í september á síðasta ári og er mjög spennur fyrir því að fara aftur á Grandaborg og fá að upplifa það að vera í leikskólanum sem hann átti alltaf að vera í. Hann náði rúmum mánuði þar á sínum tíma, áður en kom til lokunar. Foreldrar Orra eru líka fegnir því að framkvæmdum sé loksins lokið. Hann hefur verið á Hagaborg síðastliðin þrjú ár, sem er töluvert fjær heimili þeirra en Grandaborg. Frétt af mbl.is Loka Hagaborg næsta vetur Frétt af mbl.is Stefnir í 3 og hálfs árs lokun á leikskólanum mbl.is/Eggert Jóhannesson „Galið“ hvað þetta tók langan tíma „Það hefði auðvitað verið frábært að fá þetta fyrr en við sluppum vel,“ segir Auður Albertsdóttir, móðir Orra, í samtali við mbl.is . Vísar hún þar til þess að Orri hafi bara þurft að fara á tvo aðra leikskóla og að þau hafi ekki verið með fleiri leikskólabörn á Grandaborg sem þurfti að koma fyrir annars staðar. Sumir lentu í því að systkini voru á sitthvorum staðnum, með tilheyrandi flækjustigi fyrir foreldra við að skutla og sækja. „Það er náttúrulega galið hvað þetta tók langan tíma og hvað vinnubrögðin voru léleg,“ segir Auður. mbl.is/Eggert Jóhannesson Líkt og áður sagði var Grandaborg lokað í október 2022 vegna þess að skólplögn fór í sundur undir húsinu og mengun greindist í jarðvegi. Ekki var þó hafist handa við viðgerðir fyrr en átján mánuðum eftir að leikskólanum var lokað. Í haust kom svo í ljós að verktakinn gleymdi að panta innréttingar, en hann sagði sig frá verkinu á endanum. Opnun leikskólans hefur því tafist ítrekað. Frétt af mbl.is 25 börn fengu pláss en leikskólinn áfram lokaður Starfsfólkið hetjur Í febrúar fyrir ári síðan var foreldrum þeirra barna sem höfðu verið á Grandaborg boðið að sækja um forgang fyrir börnin þegar opna átti haustið 2025. Fengu foreldrarnir aðeins tvo daga til ákveða sig hvort þeir vildu sækja um flutning eða ekki, en ef ekki var óskað eftir flutningi áttu börnin að vera áfram á Hagaborg og ljúka leikskólagöngunni þar. Skömmu síðar kom hins vegar í ljós að ráðast þurfti í nauðsynlegar endurbætur á Hagaborg og var leikskólanum, líkt og áður sagði, lokað að stórum hluta í sumar. Svo var Grandaborg auðvitað ekki opnuð síðasta haust eins og til stóð, þrátt fyrir að 25 börnum hefði verið úthlutað plássi þar, heldur núna í dag 24. febrúar 2026. 1.240 dögum eftir að leikskólanum var lokað. mbl.is/Eggert Jóhannesson Auður vill þó koma á framfæri miklu þakklæti til starfsfólks leikskólanna sem hefur gert sitt besta til að tryggja öryggi og faglegt starf í vonlausum aðstæðum. „Hetjurnar í þessu er starfsfólkið, sem fær auðvitað engan veginn kreditið sem það á skilið. Það eru þau sem eru búin að gera þetta gott og veita krökkunum öryggi. Það er allavega okkar reynsla.“ Frétt af mbl.is Vesturbæjarbörnin enn og aftur færð til Frétt af mbl.is 25 börn fengu pláss en leikskólinn áfram lokaður mbl.is/Eggert Jóhannesson mbl.is/Eggert Jóhannesson mbl.is/Eggert Jóhannesson mbl.is/Eggert Jóhannesson Tengdar fréttir Leikskólamál Leita húsnæðis fyrir leikskóla Gefa lítið fyrir gagnrýni stéttarfélaga Óttast að ný leið leggist þungt á vinnandi foreldra Svona er nýja Reykjavíkurleiðin 29% fyrirtækja fá starfsfólk seint úr fæðingarorlofi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndir: Grandaborg opnuð eftir 1.240 daga bið Bakvörður Liverpool eftirsóttur á Englandi Bílar óökufærir eftir umferðarslys Leikmenn sektaðir um allt að sex milljónir króna Gætu horft til Sjóvár og Kviku Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Hver er myrkraprinsinn Mandelson? Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Minni kröfur, lélegri markmið. Það er því miður staðreynd“ Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Nýjast á mbl.is » Myndir: Grandaborg opnuð eftir 1.240 daga bið Bakvörður Liverpool eftirsóttur á Englandi Bílar óökufærir eftir umferðarslys Leikmenn sektaðir um allt að sex milljónir króna Gætu horft til Sjóvár og Kviku Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kristrún: Ótrúlega sársaukafullt stríð Sýnir hvað það þarf lítið til Mikil andstaða í umsagnarferli Starmer: Við erum ekki áhorfendur að fylgjast með utan frá Mest lesið Í gær Í vikunni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Minni kröfur, lélegri markmið. Það er því miður staðreynd“ Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu

Share this article