Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir tölur um launakostnað og rekstrargjöld úr nýbirtu uppgjöri Reykjavíkurborg bera vott um borg sem tapað hefur sjónar á hlutverki sínu. Hún bendir á að launakostnaður hjá Reykjavíkurborg hafi aukist um 18,4% milli áranna 2024 og 2025, þegar tekið er tillit til lífeyrisskuldbindinga, og rekstrargjöld um tæp 13%. Á sama tímabili hækkuðu laun í landinu að jafnaði um 7,6% og verðbólga nam 4,5%. „Það er áhyggjuefni út af fyrir sig að Reykjavíkurborg sé leiðandi áhrifavaldur á bæði launaþróun og verðbólgu í landinu. Samanburðurinn er vandræðalegur hvernig sem á það er litið, og það er orðið þjóðfélagslega mikilvægt að ná stjórn á rekstri Reykjavíkurborgar“, segir Hildur Björnsdóttir , oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Sjá einnig Borgin rekin með 5,3 milljarða halla Reykjavíkurborg birti í dag ársreikning fyrir rekstrarárið 2025. Rekstur borgarsjóðs reyndist neikvæður sem nam 5,3 milljörðum króna. Um er að ræða tæplega sex milljarða sveiflu til hins verra frá útkomuspá sem kynnt var í desember síðastliðnum. Stærstu áhrifaþættir á uppgjörið eru ofmat á skatttekjum upp á ríflega 3 milljarða, vanmetnar lífeyrisskuldbindingar og rekstrarkostnaður umfram fjárheimildir. Hildur segir að rekstur borgarinnar sé orðin allt of víðfeðmur. Reykjavíkurborg reki til að mynda eitt stærsta hugbúnaðarhús landsins nú á tímum gervigreindar og keppi við einkaaðila um fágæta sérfræðimenntaða starfsmenn. Þá hafi borgin leiðst út í hin ýmsu hliðarverkefni sem trufli borgina og dótturfélög hennar við að sinna sínum grunnhlutverkum. Nægi þar að nefna mannréttindaskrifstofu borgarinnar, Carbfix og Ljósleiðarann. „Tölur um launakostnað og rekstrargjöld úr nýbirtu uppgjöri bera vott um borg sem tapað hefur sjónar á hlutverki sínu. Við þurfum að einbeita okkur að lögbundnum verkefnum og láta af öllum óþarfa,“ segir Hildur. „Við þurfum að fækka millistjórnendum, minnka yfirbygginguna og lækka álögur. Samhliða þurfum við svo að standa vörð um krúnusdjásnin eins og Orkuveituna, en selja frá okkur gæluverkefnin. Borgin á ekki að keppa við einkaaðila á samkeppnismarkaði“, segir hún að lokum.