Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gervigreindin geti stýrt ljósum á götum borgarinnar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 28.4.2026 | 20:45 Gervigreindin geti stýrt ljósum á götum borgarinnar Anders Palm lýsir þeim lausnum sem hægt væri að nýta til þess að greiða úr samgöngum á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is. mbl.is/Eggert Jóhannesson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Samgöngutafir eru rándýrar Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Vegagerðin býður út verkhönnun Sæbrautarstokks » Fleiri tengdar fréttir Anders Palm, yfirmaður tæknideildar snjallljósastýringafyrirtækisins Swarco, segir mörg tækifæri í sjónmáli til þess að nýta gervigreind til þess að greiða samgöngur á höfuðborgarsvæðinu, enda séu slíkar lausnir mun ódýrari og skilvirkari en fjölgun akreina. Ráðstefna um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu með yfirskriftinni Greiðari leið - hugmyndir óskast! var haldin í dag, og var Anders meðal þeirra sem fluttu þar erindi. Málefnið er brýnt, enda meta hagfræðingar það svo að samfélagslegur kostnaður vegna umferðartafa sé gríðarlegur, eða allt að 100 milljarðar á ári, og þar sem umferð eykst stöðugt er mikilvægt að leita lausna sem víðast. Frétt af mbl.is Samgöngutafir eru rándýrar Frétt af mbl.is Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Sömu kerfi síðustu 50 ár Í samtali við mbl.is lýsir Anders því hvernig nota megi gervigreind til þess að gera umferð mun skilvirkari, og jafnvel draga úr umferð upp að því marki að einskis háannatíma verði vart á götum höfuðborgarsvæðisins. „Á undanförnum árum höfum við verið að prófa það að henda gamalli tækni út um gluggann og hugsað, hvernig getum við bætt umferðina með því að nýta okkur þessa nýju tækni?“ Hann segir umferðarstýringarkerfi heimsins jafnan byggð á einföldum lykkjum. „Það eru skynjarar í götunni og bílar keyra yfir þá, og þannig greinir kerfið að það sé ökutæki á veginum og umferð. Svoleiðis kerfi hafa verið við lýði seinustu 40-50 árin og hafa lítið breyst.“ Gervigreind með yfirsýn yfir raunumferð Nú þegar sé víða notast við ratsjár og myndavélar til þess að greina staðsetningu ökutækja, en Anders segir stökkið frá því að hafa örfá gatnamót með skynjara yfir í að hafa allar upplýsingar um umferð á nánast öllum gatnamótum sem uppfærðar séu tíu sinnum á sekúndu kunna að reynast umferðarstjórnunaraðilum ofviða, enda mun meiri upplýsingar til staðar fyrir þá til þess að vinna úr. „Það sem við gerðum til þess að leysa það var að innleiða gervigreindarlausn þar sem við getum í alvörunni samræmt þessar upplýsingar og notað þær til þess að gera umferðarstjórnun mikið skilvirkari.“ Frétt af mbl.is 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Marki þáttaskil Hann segir lausnina hafa alla burði til þess að marka þáttaskil í umferðarstjórnun, og að hún gæti jafnvel dregið úr þörfinni á því að bæta fleiri akreinum við fjölfarnar umferðargötur. „Þannig að það eru ýmis tækifæri til þess að bæta úr ýmsum þáttum, ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og nota nýjustu tækni til þess að straumlínulaga umferð í stað þess að bæta bara sífellt við nýjum akreinum, sem getur reynst mjög kostnaðarsamt, og vonast til þess að það leysi umferðarvandann,“ segir Anders. „Markmiðið er að reyna að fá sem mest út úr því sem er nú þegar til staðar, og með þessari tækni getum við fengið sem mest út úr vegakerfinu.“ Unnt að stytta um 10% að meðaltali Með því að innleiða snjallljósastýringu byggða á gervigreind segir Anders unnt að stytta háannatíma í umferð um 10% að meðaltali, og í ofanálag stytta þau tímabil þar sem umferð byggist upp fyrir háannatíma. Slíkar framfarir náist vegna þess hve vel gervigreindin geti nýst til þess að aðlaga umferðarstjórnun að raunaðstæðum, í stað þess að reiða sig á umferðarljósakerfi byggt á greiningum sem kunna að hafa verið gerðar fyrir áratugum síðan í allt öðru umferðarumhverfi. Frétt af mbl.is Stefnir í öngþveiti að óbreyttu „Það væri óskandi að framkvæma umferðargreiningar eins oft og mögulegt er, en það er bæði dýrt og óhagkvæmt, auk þess sem umferðin getur breyst frá degi til dags,“ segir Anders. Gervigreind geti hins vegar greint umferð í rauntíma og lagað umferðarljósaáætlanir um alla borgina að núverandi aðstæðum. „Svo ef það verður til dæmis umferðarslys og loka þarf stofnvegi, þá tvístrast umferðin og stíflar algerlega ökuleiðir sem áður var engin umferð eftir,“ segir Anders. „Það er vanalega eins og eitur fyrir umferðarstjórnunaraðila, en ef við notum gervigreind til þess að greina umferðina nákvæmlega eins og hún er á þessu augnabliki, þá getur hún aðlagað ljósastýringu að þessum óvanalegu aðstæðum samstundis.“ Fáeinar milljónir króna á gatnamót Anders segir kostnað við innleiðingu gervigreindarstjórnunarkerfis Swarco fyrst og fremst fara eftir því hversu mikill umferðarstýringarbúnaður sé þegar til staðar við hver og ein gatnamót. „Ef það eru þegar skynjarar eða myndavélar við gatnamótin er hægt að koma kerfinu fyrir með tiltölulega litlum tilkostnaði, allt niður í nokkrar milljónir króna, en ef þeir innviðir eru ekki til staðar bætist við uppsetningarkostnaðinn.“ Ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur Mikilvægt sé að meta það vel hvar mestra úrbóta er þörf og forgangsraða framkvæmdum fyrir þau þrjú hundruð gatnamót sem finnast á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við það – ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur, eins og hann kýs að orða það. „En hver sem kostnaðurinn við það verður er það alveg ljóst að það verður ódýrari og langvinnari lausn en að fjölga akreinum við gatnamót.“ Hlýða má á erindi Anders á 64. mínútu ráðstefnunnar, sem horfa má á upptöku af hér að neðan: Frétt af mbl.is Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Tengdar fréttir Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Samgöngutafir eru rándýrar Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Vegagerðin býður út verkhönnun Sæbrautarstokks » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Haukar - Keflavík, staðan er 74:58 Gervigreindin geti stýrt ljósum á götum borgarinnar París SG - Bayern München, staðan er 5:4 Þetta veitir Íslendingum mesta ánægju Hafa reynt í viku að bjarga hnúfubaki Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ríkisstjórnin bregst við stöðu samgangna til Eyja Grunar að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Ekki kosningabrella Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Kristrún vill sjálf dæma Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Nýjast á mbl.is » Haukar - Keflavík, staðan er 74:58 Gervigreindin geti stýrt ljósum á götum borgarinnar París SG - Bayern München, staðan er 5:4 Þetta veitir Íslendingum mesta ánægju Hafa reynt í viku að bjarga hnúfubaki Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ábati uppbyggingarinnar fer í nýjan listaháskóla Ætla að byggja 1.200-1.400 íbúðir á ríkislóðum Segir að um sögulegan áfanga sé að ræða 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Kristrún vill sjálf dæma Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“

Share this article