Rekstrartekjur borgarsjóðs (A-hluti) námu 206,6 milljörðum króna og hækkuðu um 12,1 milljarð milli ára. Tekjurnar voru 0,5 milljörðum undir áætlun. Þetta kemur fram í ársreikningi Reykjavíkurborgar en eins og fjallað hefur verið um var borgarsjóður rekinn með 5,3 milljarða króna halla á síðasta ári. Niðurstaðan er allt önnur en gert hafði verið ráð fyrir í útkomuspá, sem birt var í nóvember. Samkvæmt útkomuspánni átti borgarsjóður að vera rekinn með tæplega 400 milljóna króna afgangi. Niðurstaðan var því 5,7 milljörðum lakara en spáin gerði ráð fyrir. Skatttekjur ásamt framlögum frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hækkuðu um 13,6 milljarða milli ára. Þar af jukust tekjur af staðgreiddu útsvari um 9,3 milljarða eða um 7%. Eftir á álagt útsvar vegna skatttekna ársins 2024 var 2,7 milljörðum hærra en árið áður og framlög Jöfnunarsjóðs hækkuðu um 1,9 milljarða. Af 206,6 milljarða rekstrartekjum námu skatttekjur 156,6 milljörðum í fyrra samanborið við 144,7 milljarða árið 2024. Þess má að á fjórum árum hafa skatttekjur borgarinnar hækkað um 42% eða úr 110,5 milljörðum króna árið 2021 í 156,5 milljarða árið 2025. Tekjur af sölu byggingarréttar námu 3,4 milljörðum króna á síðasta ári. Borgin gerði fjölmarga uppbyggingarsamninga á árinu, sem ekki hafa enn komið til tekna enn þá. Eru samningarnir metnir á allt að 2,8 milljarða króna að frátöldum gatnagerðargjöldum upp á um 3,2 milljarða. Í skýrslu borgarstjóra og borgarráðs segir að „þessir samningar koma til tekna á árinu 2026 eða síðar eftir framvindu uppbyggingar“. 92,4 milljarðar í laun Rekstrargjöld borgarsjóðs námu 199,3 milljörðum króna á árinu 2025 og fóru 6,1 milljarð fram úr fjárheimildum. Á árinu 2024 námu rekstrargjöld borgarsjóðs 176,2 milljörðum. Árið 2021 námu rekstrargjöldin 138,2 milljörðum, sem þýðir að þau hafa hækkað um 44% síðan þá. Laun og launatengd gjöld hækkuðu um 8,4 milljarða króna milli ára og var launakostnaður 1,2 milljörðum króna yfir áætlun, sem fyrr er sú hækkun einkum rakin til nýrra kjarasamninga á opinbera markaðnum. Sé breyting á lífeyrisskuldbindingu tekin með nemur hækkunin 19,1 milljarði króna á milli ára sem er 18,4% hækkun. Annar rekstrarkostnaður hækkaði um 3,9 milljarða milli ára og var 1,8 milljörðum yfir fjárheimildum. Sé eingöngu litið til launagreiðslna þá greiddi borgarsjóður 92,4 milljarða króna í laun á síðasta ár samanborið við 86,2 milljarða árið 2024. Nemur hækkunin um 7,2% á milli ára. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina heild hér .