Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Leita eig­enda rúm­lega milljarðs króna

Read Full Article →

Dönsk skatta­yfir­völd hafa aug­lýst eftir eig­endum að tæp­lega 6.000 banka­reikningum og inn­lánum sem ekki hafa verið rétt skráð á kenni­tölu eða með fullnægjandi persónu­upp­lýsingum. Á reikningunum eru sam­tals 55 milljónir danskra króna, jafn­virði rúm­lega milljarðs ís­lenskra króna. Á einum reikninganna eru meira en 400.000 danskar krónur, eða hátt í átta milljónir ís­lenskra króna. Þetta kemur fram í frétt danska við­skipta­blaðsins Børsen, sem vísar í til­kynningu frá danska skatta­yfir­valdinu. Reikningunum var lokað tíma­bundið á síðasta ári þar sem bankarnir höfðu ekki nægjan­legar upp­lýsingar um eig­endur þeirra. Eig­endur reikninganna hafa ekki gefið sig fram og hafa nú eitt ár til þess að gera kröfu til fjárins. Sam­kvæmt dönskum reglum ber skatta­yfir­völdum að birta slíka aug­lýsingu opin­ber­lega þegar ekki liggja fyrir fullnægjandi upp­lýsingar um eig­endur reikninga og inn­lána. Ul­rick Jun­ge, að­stoðar­for­stjóri danska skatta­yfir­valdsins, segir að bankar og við­skipta­vinir beri sam­eigin­lega ábyrgð á því að reikningar og inn­lán séu skráð með réttum upp­lýsingum. „Ef það er ekki gert getur það í versta falli leitt til þess að ríkið geri fjár­munina upp­tæka. Það vill enginn og þess vegna biðjum við al­menning um að­stoð: Ef þú ert sjálfur á listanum eða þekkir ein­hvern sem er það, er rétti tíminn núna til að hafa sam­band við viðkomandi banka,“ segir Jun­ge í til­kynningunni. Fjár­munirnir geta því að óbreyttu runnið til danska ríkisins ef eig­endur þeirra gefa sig ekki fram innan árs.

Share this article