Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ásakanir ganga á víxl milli banka­stjóra: „hræðsluáróður“

Read Full Article →

Harðar deilur eru komnar upp á milli æðstu stjórn­enda danskra fjár­mála­fyrir­tækja um vaxandi vinsældir sér­saminna íbúðalána bankanna. Carsten Egeriis, for­stjóri Danske Bank, hafnar því al­farið að bankinn sé að grafa undan hefðbundna danska fast­eigna­lána­kerfinu. Hann sakar Michael Rasmus­sen, for­stjóra Nykredit, um að ýta undir hræðsluáróður í um­ræðunni. Rasmus­sen sagði í sam­tali við Børsen í síðustu viku að danska fast­eigna­lána­kerfið væri undir þrýstingi vegna nýrrar tegundar íbúðalána og hvatti stjórn­mála­menn til að bregðast við. Egeriis segir þann mál­flutning frá­leitan. „Ég er mjög undrandi á þessu sem ég myndi nánast kalla hræðsluáróður,“ segir Egeriis við Børsen. Mismunun eða valfrelsi? Deilan snýst um sér­samin íbúðalán bankanna, sem eru val­kostur ofan á hefðbudin dönsk fast­eigna­lán. Lánin eru veitt gegn veði í húsnæði, en ólíkt hefðbundnum dönskum fast­eigna­lánum eru vextir og skilmálar samin sér­stak­lega milli banka og við­skipta­vinar. Kjörin geta því ráðist af láns­hæfi, samnings­stöðu og við­skipta­sam­bandi hvers og eins. Í hefðbundna danska fast­eigna­lána­kerfinu eru lán hins vegar fjár­mögnuð með út­gáfu sér­tryggðra skulda­bréfa. Lántak­endur fá þar í grunninn sömu kjör eftir lána­tegund, óháð láns­trausti og bú­setu. Það er ein­mitt þessi munur sem hefur orðið til­efni deilunnar. Óttast að bestu lántak­endurnir fari úr kerfinu Áhyggjur Nykredit snúast um að fjár­hags­lega lántak­endurnir með besta lánshæfið geti í auknum mæli fært sig úr hefðbundnum fast­eigna­lánum yfir í sér­samin íbúðalán hjá bönkunum, þar sem þeir geti samið um betri kjör. Ef það gerist gæti það, að mati Nykredit, veikt hefðbundna fast­eigna­lána­kerfið til lengri tíma. Þá sætu eftir í kerfinu lántak­endur með lakara láns­hæfi að meðaltali, sem gæti haft áhrif á áhættu og verðlagningu. Danska fjár­mála­eftir­litið hefur einnig bent á að slík þróun gæti til lengri tíma veikt fast­eigna­lána­kerfið ef traustustu við­skipta­vinirnir veldu í auknum mæli sér­samin íbúðalán bankanna í stað hefðbundinna fast­eigna­lána. Egeriis segir hins vegar að það að eftir­litið fylgist með þróuninni þýði ekki að vanda­mál sé þegar til staðar. „Það er fínt að fylgjast með þessu. En það þýðir ekki að það sé vanda­mál,“ segir hann. Lánin í mikilli sókn Sér­samin íbúðalán bankanna hafa vaxið hratt í Dan­mörku síðustu ár. Sam­kvæmt tölum danska fjár­mála­eftir­litsins jukust slík lán um rúm­lega 53% frá 2020 til 2025 og námu 130 milljörðum danskra króna. Á sama tíma fóru þau úr því að vera 5% af heildaríbúðalánum í 8%. Haustið 2025 námu lánin 18% af nýjum íbúðalánum. Þau hafa því farið úr því að vera til­tölu­lega af­markaður hluti markaðarins í að skipta veru­legu máli í nýjum útlánum. Danske Bank hefur einnig séð mikinn vöxt í slíkum lánum. Sam­kvæmt tölum sem bankinn deildi með Børsen jukust þau um 46% á einu ári hjá bankanum. Hafnar því að því að velja bestu við­skipta­vinina Egeriis hafnar því að Danske Bank sé mark­visst að færa bestu við­skipta­vinina úr hefðbundnum fast­eigna­lánum yfir í sér­samin íbúðalán bankans. „Það er enginn fótur fyrir því,“ segir Egeriis. Hann segir við­skipta­vini Danske Bank velja bæði hefðbundin fast­eigna­lán og sér­samin íbúðalán, af mis­munandi ástæðum. Verðlagningin sé í stórum dráttum svipuð og láns­hæfi við­skipta­vina í hvorum hópi einnig sam­bæri­legt. „Við erum með allar vörurnar á hillunni og við­skipta­vinirnir velja þær út frá því hvað hentar þeim best,“ segir Egeriis. Hann segir Danske Bank jafn áhuga­saman um að selja hefðbundin fast­eigna­lán og sér­samin íbúðalán. Bankinn eigi Real­kredit Dan­mark, sem Egeriis kallar eitt nýsköpunar­drifnasta fast­eigna­lánafélag Dan­merkur. Sjá einnig Opna á 4% lán á föstum vöxtum Bankar sam­einast gegn Nykredit Um­mæli Egeriis koma í kjölfar þess að Danske Bank, Nor­dea og Jyske Bank birtu sam­eigin­lega grein í Børsen þar sem þau svöruðu gagn­rýni Nykredit. John Fis­ker, for­stjóri Ring­kjøbing Land­bobank, hefur einnig hafnað því að sér­samin íbúðalán bankanna ógni danska fast­eigna­lána­kerfinu. Deilan er sér­stak­lega viðkvæm þar sem Rasmus­sen og Egeriis sitja báðir í stjórn Finans Dan­mark, hags­muna­sam­taka danska fjár­mála­geirans. Rasmus­sen er for­maður sam­takanna og Egeriis annar vara­for­maður. Að­spurður um að for­maður sam­takanna hafi, að mati hans, farið fram með hræðsluáróður segir Egeriis mál­flutninginn ekki endur­spegla sam­eigin­lega af­stöðu innan sam­takanna. Vara við að jafnræði gæti veikst Deilan snýst í grunninn um hvort sér­samin íbúðalán bankanna séu heil­brigður val­kostur fyrir neyt­endur eða ógn við danska fast­eigna­lána­kerfið. Nykredit varar við því að kerfi sem byggir á jafn­ræði lántak­enda geti veikst ef bestu lántak­endurnir færa sig yfir í sér­samin bankalán. Danske Bank og fleiri bankar segja hins vegar að við­skipta­vinir eigi að ráða því sjálfir hvaða lán henti þeim best. Þannig er deilan orðin stærri en spurning um ein­staka lána­vöru. Hún snýst um framtíð danska fast­eigna­lána­kerfisins, jafn­ræði lántak­enda og hversu langt bankar eigi að ganga í að sérsníða kjör eftir láns­hæfi við­skipta­vina.

Share this article