Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skuldirnar hafa hækkað um 100 milljarða í tíð Samfylkingarinnar

Read Full Article →

Frá fyrsta heila árinu undir stjórn borgarstjóra Samfylkingar árið 2015 og til ársins 2025 hækkuðu skuldir borgarsjóðs, svonefnds A-hluta, úr 80 milljörðum króna í 221 milljarð króna. Sjá einnig 100 milljarðar af skuldum í boði Sam­fylkingar Dags og Heiðu – og nú Péturs Marteins Á föstu verðlagi nemur hækkun skuldanna 97 milljörðum króna, eða 78%. Borgin hefur sótt sér arð í borgarfyrirtækin á þessum árum, 2015-2025, sem nemur 41,5 milljarði króna á föstu verðlagi. Nær allur arðurinn kom frá Orkuveitunni, eða 37,8 milljarðar króna. Á árunum 2015-2025 hafa skuldir Orkuveitunnar hækkað um 55 milljarða króna. Það þýðir að Orkuveitan tók lán fyrir arðgreiðslunum til Reykjavíkurborgar. Nánar er fjallað um rekstur borgarinnar í Óðni í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið pistilinn í heild hér .

Share this article