Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Miðflokksins, segir Reykjavíkurborg glíma við alvarlegan skuldavanda. Miklar skuldir hafi sligandi áhrif á rekstur borgarinnar en hann bendir á að fjármagnsgjöld hennar námu um 22 milljörðum króna á árinu 2025.- Skuldir borgarsjóðs námu tæplega 222 milljörðum króna um síðustu áramót og jukust um rúmlega átján milljarða á milli ára. Kjartan bendir á að aukningin milli ára nemi 8,9% en til samanburðar hafi ársverðbólga árið 2025 verið um 4,5%. Þá hafi skuldir samstæðu borgarinnar aukist um tæpa 36 milljarða króna á árinu eða um 6,8%, sem sé einnig umfram verðbólgu. „Reykjavíkurborg glímir við alvarlegan skuldavanda,“ segir Kjartan. Sjá einnig Borgin rekin með 5,3 milljarða halla „Ársreikningurinn sýnir að meirihluti Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna hefur engin tök á fjármálum borgarinnar. Samkvæmt gildandi fjárhagsáætlun 2026 hyggst vinstri meirihlutinn halda áfram að eyða um efni fram og fjármagna rekstur borgarinnar með enn frekari lántökum.“ Tap hjá borgarsamstæðunni án „froðuhagnaðar“ Reykjavíkurborg birti í dag ársreikning fyrir rekstrarárið 2025. Rekstur A-hluta borgarsjóðs reyndist neikvæður sem nam 5,3 milljörðum króna. Kjartan segir að rekstur Reykjavíkurborgar hafi verið ósjálfbær á árinu 2025 þrátt fyrir hámarksskattheimtu og stórauknar tekjur. Hann lítur einnig á 8 milljarða króna afgang A- og B-hluta Reykjavíkurborgar, þ.e. samstæðu borgarinnar, sem „froðuhagnað“ en ekki raunverulegan hagnað byggðan á tekjum. „Þessi „hagnaður“ er til kominn vegna svokallaðrar matsbreytingar fjárfestingareigna Félagsbústaða, þ.e. félagslegra íbúða borgarinnar,“ segir Kjartan en matsbreyting fjárfestingareigna Félagsbústaða nam 8,3% milljörðum króna í fyrra. „Það gefur ekki veginn rétta mynd af rekstri Reykjavíkurborgar að nota slíka virðishækkun á félagslegum íbúðum til að fegra rekstrarreikning samstæðunnar. Slík matsbreyting er reiknuð stærð, sem skilar ekki raunverulegum tekjum til rekstrarins Ekki stendur til að selja félagslegar íbúðir borgarinnar og er því ekki um fjárfestingareignir að ræða í eðlilegum skilningi þess orðs.“ Hann bendir á að án umræddrar matsbreytingar félagslegra íbúða nam tap samstæðu Reykjavíkurborgar 347 milljónum króna árið 2025.