Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Olíu­verð ekki hærra síðan 2022

  • What: Oil prices rise to highest level since 2022
  • Impact: Global energy markets affected
Read Full Article →

Verð á Brent-hráolíu hækkaði veru­lega í dag og fór yfir 115 dali á tunnu. Sam­kvæmt markaðs­gögnum var Brent-olía síðast skráð í 116,35 dölum á tunnu, sem er hækkun um rúm­lega 4,5% frá fyrri degi. Olíu­verðið hefur ekki verið hærra síðan árið 2022. Hækkunin endur­speglar vaxandi áhyggjur á mörkuðum af átökum í Mið-Austur­löndum og mögu­legum áhrifum þeirra á olíu­fram­boð. Þegar þetta er skrifað stendur Brent-hráolía var skráð í um 116 dölum á tunnu, sam­kvæmt markaðs­gögnum Business Insi­der. The Telegraph segir að rekja megi hluta hækkunarinnar til um­mæla Donald Trump Bandaríkja­for­seta í garð Írans. Hann hótaði írönskum stjórn­völdum og sagði að þau þyrftu að „taka sig á“ í viðræðum um kjarn­orkumál. Telegraph greinir frá því að Trump hafi sagt að hann væri ekki lengur „Mr Nice Guy“ gagn­vart Íran. Bandaríkja­for­seti birti jafn­framt mynd af sér á sam­félags­miðlinum Truth Social, þar sem hann sést í jakka­fötum og sól­gler­augum með árásar­riffil í höndum, um­kringdur sprengingum. Um­mælin og fram­ganga for­setans hafa aukið óvissu á olíumörkuðum. Færsla Trump á Truth Social. Ótti við nýja verðbólgu­skriðu Hækkun olíu­verðs hefur þegar haft áhrif á hluta­bréfa­markaði. Breska FTSE 100 vísi­talan lækkaði í morgun, meðal annars vegna áhyggja fjár­festa af því að hærra olíu­verð geti dregið úr hag­vexti og ýtt undir verðbólgu. Slík þróun gæti flækt stöðu seðla­banka beggja vegna At­lants­hafsins. Bæði Eng­lands­banki og bandaríski seðla­bankinn eru taldir lík­legir til að halda vöxtum óbreyttum í þessari viku, en hærra orku­verð getur aukið þrýsting á verðbólgu­væntingar og seinkað vaxtalækkunum. Susannah Streeter hjá Wealth Club segir að áhrifin geti dreifst víða um hag­kerfið, meðal annars í formi hærri fjár­mögnunar­kostnaðar. Hún segir að áhyggjur af áhrifum á heims­hag­kerfið og breskan efna­hag geti sett þrýsting á hluta­bréfa­markaðinn.

Share this article