Innlent | Spursmál | mbl | 11.2.2026 | 21:00 Forsætisráðherra og Seðlabankinn tala í kross Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra hefur fullyrt að áhrif gjalda- og skattahækkana um áramót séu komnar fram í mælingum Hagstofunnar og langtímaáhrifin engin. Seðlabankinn er ekki sannfærður. Um þetta er fjallað í inngangi Spursmála. Þar er vísað til ummæla Ásgeirs Jónssonar, seðlabankastjóra og Þórarins G. Péturssonar varaseðlabankastjóra peningastefnu annars vegar sem þeir létu falla þegar nýjasta vaxtaákvörðun peningastefnunefndar var tilkynnt í liðinni viku. Hins vegar er vísað til ummæla sem Kristrún Frostadóttir hefur látið falla víða á síðustu dögum en meðal annars í viðtali í Bítinu á Bylgjunni. Skattahækkanir á versta tíma Þannig bendir Seðlabankinn á að gjaldahækkanir ríkisstjórnarinnar hafi komið á versta tíma, einmitt þegar bankinn upplifir sig í stríði við verðbólguna sem hefur farið á mikinn skrið að undanförnu. Þannig mældist verðbólgan 5,2% í janúar og var aukningin úr 4,8% í fyrri mánuði að stórum hluta rakin til ákvarðana sem ríkisstjórn Kristrúnar keyrðu í gegnum þingið á lokadögum þess fyrir jól. Seðlabankinn áhyggjufullur Þá hefur Seðlabankinn lýst miklum áhyggjum af því að áhrifa þessara hækkana muni gæta í mælingum á komandi mánuðum þar sem einskonar veltiáhrif verði af hækkunum hins opinbera. Á þetta allt blæs Kristrún og reyndar Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra einnig en hann hafði fullyrt, áður en mælingar Hagstofunnar voru birtar að áhrif vörugjaldahækkana og innleiðing kílómetragjalds myndi hafa mun minni áhrif í hagkerfinu en greiningaraðilar og ýmsir aðrar höfðu varða við að yrðu. Frétt af mbl.is „Fjármálaráðherra haft rangt fyrir sér ítrekað“ Þegar Hagstofan staðfesti versta ótta þeirra sem töldu áhrifin meiri en ráðherrann, kenndi hann einfaldlega olíufélögum og bifreiðaumboðum um áhrifin. Gengur það þvert á það sem fram kemur í gögnum Hagstofunnar. Frétt af mbl.is Segir Daða augljóslega hafa misreiknað sig Næsta verðlagsmæling Hagstofunnar verður birt 26. febrúar næstkomandi. Það er svo dagana 16. og 17. mars sem peningastefnunefnd Seðlabankans hittist næst til þess að ráða ráðum sínum og degi síðar verður tilkynnt um hverjir stýrivextir bankans skuli verða. Fjallað var um málið á vettvangi Spursmála á föstudag þar sem Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi voru meðal annarra gestir. Þáttinn má sjá í heild sinni hér: Hagfræðingarnir Þórarinn G. Pétursson, Kristrún Frostadóttir og Ásgeir Jónsson. Willum: Mikilvægt fyrir alla íþróttahreyfinguna Með Icelandair á nyrsta McDonald's heims Lygileg endurkoma Njarðvíkur Forsætisráðherra og Seðlabankinn tala í kross Inga tekur fimm með sér úr félagsmálaráðuneytinu ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Ná nákvæmari vöktun á landinu Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Sindri mættur fyrir dóm Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Willum: Mikilvægt fyrir alla íþróttahreyfinguna Með Icelandair á nyrsta McDonald's heims Lygileg endurkoma Njarðvíkur Forsætisráðherra og Seðlabankinn tala í kross Inga tekur fimm með sér úr félagsmálaráðuneytinu ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Ná nákvæmari vöktun á landinu Aðstæður stofni sjúklingum og starfsfólki í hættu Veruleg fjölgun í íslenskum málum hjá Eurojust Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar