Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Hernaðaraðgerðir í Íran kostað 25 milljarða Bandaríkjadala Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna gegn Íran hafa kostað ríkið um 25 milljarða hingað til. Þetta herma heimildir fréttastofu Reuters. Embættismaður úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna kom fyrir þingnefnd í dag og sagði að mestur hafi kostnaðurinn verið vegna vopnabúnaðar. Ekki fékkst upp gefið hvort þessi kostnaður fæli í sér tjón sem orðið hefur á herstöðvum í árásum Írana. Einungis þriðjungur Bandaríkjamanna segjist hlynntur stríðsrekstrinum. NýttINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Framlengja gæsluvarðhald í Dettifossmáli Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl með Dettifossi. Fjórmenningarnir eru á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri og eru frá Íslandi. Fyrir 28 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Stríðið í Mið-Austurlöndum gæti steypt rúmlega 30 milljónum í fátækt Stríðið í Mið-Austurlöndum gæti steypt rúmlega 30 milljónum í fátækt. Mest verða áhrifin í Afríku sunnan Sahara sem og í Asíu. Fyrir 47 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Sláandi skýrsla um banaslys á Patreksfirði: Björgunarbátur virkaði ekki Rannsóknarnefnd samgönguslysa segir marga annmarka á frágangi björgunarbáts strandveiðibátsins Ormsins langa. Óskráðar breytingar á bátnum drógu einnig úr stöðugleika hans. Samgöngustofa hefur hert eftirlit sitt með skoðunarstöðvum björgunarbáta. Fyrir 54 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Rafræn slagsíða í Undiröldunni Rafpoppið er í meirihluta í Undiröldunni þessa vikuna þar sem er boðið upp á nýtt efni frá Laufeyju, Unnsteini Manuel, Lúpínu og fleirum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Málamiðlun tryggi strandveiðar í sumar Formaður atvinnuveganefndar segir að fallið hafi verið frá afnámi línuívilnunar og skel- og rækjubóta í frumvarpi til breytinga á lögum um stjórnun fiskveiða til að ná meiri samstöðu um málið. 2700 tonnum verður bætt við strandveiðiheimildir. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélagsmiðlar Ísland vinnur að innleiðingu reglugerðar sem ESB telur Facebook og Instagram brjóta Meta framfylgir ekki eigin reglum til að hindra aðgang barna, segir Evrópusambandið. Rannsókn á þessu hefur staðið í tvö ár á grundvelli reglugerðar um netfyrirtæki. Mikilvægt er að innleiða hana hér segir atvinnuvegaráðherra. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Seljendur vændis eru oft og tíðum þolendur mansals Dósent við lagadeild HR segir brýna þörf fyrir markvissa aðgerðaráætlun stjórnvalda sem snúi að aðgerðum gegn mansali. Núgildandi áætlun er frá árinu 2019. Vændi geti verið mansal og í mansali felist gróf mannréttindabrot. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Sæði yfir 70 gjafa hefur verið tekið úr notkun vegna erfða- og genagalla Sæði frá yfir 70 sæðisgjöfum hefur verið tekið úr notkun á Íslandi frá árinu 2013. Gjafarnir eru flestir danskir eins og í máli sem fjallað var um í Kastljósi fyrir jól. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Hinn fullkomni fótbolti en dökka listin bíður? – „Guð minn góður, sko“ Leikur Paris Saint-Germain gegn Bayern München jafnaði 66 ára gamalt met. PSG vann leikinn 5-4 og jafnaði met frá 1960. Hörður Magnússon segir þetta dæmi um hinn fullkomna fótbolta og að þetta sé andsvar við hinni dökku hlið fótboltans. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin mælist stærst í Hafnarfirði Meirihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar er fallinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Samfylkingin mælist stærst. Viðreisn og Sjálfstæðisflokkur mælast með rétt rúmlega 22 prósenta fylgi. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Karli konungi hrósað í hástert fyrir sögulega ræðu Ræðu Karls þriðja Bretakonungs á Bandaríkjaþingi í gær var vel tekið. Erlendir miðlar segja konunginn hafa sýnt meistaratakta með áherslu á mikilvægi sambands Bretlands og Bandaríkjanna og hvatt þau til að standa með vestrænum bandamönnum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögreglan rannsakar söluna á Sóltúni hjúkrunarheimili Fyrrverandi eigandi Sóltúns kærði tvo stærstu eigendur hjúkrunarheimilisins til lögreglunnar fyrir meint brot. Málið snýst um sölu Sóltúns árið 2009. Lögmaður annars hinna kærðu segir kæruna tilhæfulausa og að henni verði vonandi vísað frá sem fyrst. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Fugl flaug á línu og olli rafmagnsleysi Brynjólfur Þór Guðmundsson Rafmagnslaust varð milli Kirkjubæjarklausturs og Víkur rétt fyrir klukkan eitt. Starfsmenn Rariks voru fljótir að gera við bilunina og tíu mínútum síðar var rafmagn komið á aftur. Samkvæmt upplýsingum frá Rarik mun fugl hafa flogið á línu í dreifikerfinu og valdið rafmagnsleysinu. Rafmagnslaust varð á grænmerkta svæðinu. RARIK Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Piparmeyjar: Alveg sérlega vel heppnuð saga „Þetta er fjári vel gert,“ segir Þorgeir Tryggvason en gagnrýnendur Kiljunnar eru á sama máli að Piparmeyjar eftir Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur sé bæði áhugaverð og skemmtileg aflestrar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Vill að fangelsi verði lágmarksrefsing vegna vændiskaupa Dómsmálaráðherra hyggst girða fyrir að vændiskaupamálum ljúki án ákæru. Það hyggst hún gera með lagafrumvarpi um að fangelsi verði lágmarksrefsing vegna vændiskaupa. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál „Verðbólgan vonandi búin að toppa“ Tólf mánaða verðbólga hjaðnaði úr 5,4 í 5,2 prósent milli mánaða. Forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbanka Íslands segir að minni verðbólga geti orðið til þess að stýrivextir hækki minna en spáð hefur verið. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Verklok á nýjum hringvegi um Hornafjörð enn ótímasett Enn er bið á að umferð verði hleypt á nýja hringveginn um Hornafjarðarfljót. Framkvæmdir hafa staðið yfir frá 2020 en verkið hófst formlega árið 2017 með samningum við landeigendur. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fær ekki að fljúga á meðan lágflugið er til rannsóknar Flugmaður Icelandair sem var með í lágflugi yfir Vestmannaeyjum í byrjun apríl fær ekki að fljúga meðan á rannsókn málsins stendur. Samgöngustofa getur svipt flugmenn leyfi verði þeir uppvísir um brot á reglum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Segir húsnæðispakka ekki taka á bráðavanda Formaður Félags fasteignasala segir að húsnæðipakki ríkisstjórnarinnar taki ekki á bráðavandanum á fasteignamarkaði. Lækka þurfi álögur á byggingarmarkaði til að tryggja áframhaldandi uppbyggingu íbúða. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Nágrannar reyndu að hrekja vændiskaupendur burt Grunur er um að vændi hafi þangað til nýlega verið selt í kjallaraíbúð í Túnunum í Reykjavík. Kínversk kona er grunuð um að hafa skipulagt starfsemina en hún var eftirlýst um tíma. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Rangárþing ytra 459 milljóna afgangur hjá Rangárþingi ytra Brynjólfur Þór Guðmundsson Um 459 milljóna króna afgangur var á rekstri Rangárþings ytra í fyrra þegar bæði eru tekin með sveitarsjóður og fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins. Ef aðeins er litið til sveitarsjóðs og starfseminnar, sem er að öllu leyti fjármögnuð með skatttekjum, nam afgangurinn 376 milljónum. Ársreikningur verður lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn í dag. Tekjur A og B hluta námu 4.324 milljónum og jukust um tólf prósent milli ára. Útgjöld hljóðuðu upp á 3.713 milljónir, það er tólf prósentum meira en í fyrra. Fánar Rangárþings ytra við hún á hringtorgi. RÚV / Þorgils Jónsson Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Nýir fréttastjórar Sýnar Brynjólfur Þór Guðmundsson Atli Ísleifsson og Sunna Sæmundsdóttir eru orðin fréttastjórar á fréttastofu Sýnar. Árni Sæberg verður varafréttastjóri. Sunna hefur unnið á fréttastofu Sýnar frá 2017 og Atli frá 2014. Þau hafa bæði verið varafréttastjórar frá 2021. Kolbeinn Tumi Daðason, sem var fréttastjóri allra miðla Sýnar, varð ritstjóri fréttastofunnar þegar Erla Björg Gunnarsdóttir hætti í janúar. Atli og Sunna taka við stöðunni sem hann gegndi áður. Fréttastofa Sýnar flytur fréttir á Vísi, Bylgjunni og Sýn. Kolbeinn Tumi Daðason, Árni Sæberg, Sunna Sæmundsdóttir og Atli Ísleifsson á fréttastofu Sýnar. Sýn Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Hafa tekið 21 af lífi og handtekið 4000 síðan stríðið byrjaði Írönsk stjórnvöld hafa tekið að minnsta kosti 21 af lífi síðan stríðið í Mið-Austurlöndum byrjaði 28. febrúar. Rúmlega 4.000 hafa verið handteknir á sama tíma. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Forseti Íslands Forsetahjónin mæta í afmæli Svíakonungs Brynjólfur Þór Guðmundsson Halla Tómasdóttir forseti og Björn Skúlason, maki hennar, halda til Svíþjóðar í dag til að taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni af áttræðisafmæli Karls Gústafs Svíakonungs á morgun. Karl Gústaf hefur verið konungur frá 1973 og lengst allra þjóðhöfðingja í sögu landsins. Halla og Björn taka þátt í hátíðarmessu í Slottskyrkan á morgun. Að henni lokinni verður afmælisdagskrá haldið áfram í konungshöllinni. Síðdegis býður borgarráð Stokkhólms til hádegisverðar og afmælishátíðinni lýkur með kvöldverði annað kvöld. Allir þjóðhöfðingjar á Norðurlöndum og fleiri þjóðarleiðtogar og gestir verða við hátíðarhöldin. Halla Tómasdóttir forseti. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Malí Frakkar hvattir til að yfirgefa Malí Ásrún Brynja Ingvarsdóttir Frönsk stjórnvöld hvetja franska ríkisborgara til þess að yfirgefa Afríkuríkið Malí við fyrsta tækifæri. Óstöðugt ástand er í landinu. Aðskilnaðarsinnar Túarega og herskáir íslamistar í Malí náðu um helgina völdum í bænum Kidal norðarlega í landinu, sem gegnir lykilhlutverki í stjórnsýslu norðurhlutans og vilja koma þar upp sjálfstæðu ríki. Umferð í Bamako á Malí, 27. apríl 2026. EPA / HADAMA DIAKITE Þar hafa herskáir íslamistar árum saman haft tögl og hagldir og gert líf íbúa þar nær óbærilegt með sprengjutilræðum, skotárásum og öðrum ódæðum. Frönsk yfirvöld ráða fólki eindregið frá