Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bætist ört í hóp sýnenda

Read Full Article →

Fimm mánuðir eru þar til einn stærsti viðburðurinn í íslenskum sjávarútvegi opnar dyr sínar fyrir gestum og gandandi, IceFish 2026 sjávarútvegssýningin í Fífunni í Kópavogi. Stephanie Snowden, markaðs- og kynningarstjóri hjá Mercator Media, enska sýningarhaldaranum, segir undirbúning sýningarinnar, sem verður sú stærsta hingað, ganga vel. „Við höfum með gaumgæfni valið nokkur íslensk fyrirtæki til þess að þjónusta þennan viðburð og við eigum reglulega fundi með fulltrúum þeirra. Sýningin er einn stærsti viðskiptaviðburður á Íslandi og þess vegna erum við líka ánægð með gott samstarf við bæjarstjórn Kópavogs, samstarf sem stuðla mun að vel heppnaðri sýningu jafnt fyrir sýnendur og gesti,“ segir Snowden. Hún segir viðbrögð íslenskra fyrirtækja góð. Stór fyrirtæki eins og JBT Marel, Hampiðjan, Samhentir, Ísfell, Kælismiðjan Frost, Baader og Slippurinn snúi öll aftur árið 2026. Einnig sé ánægjulegt að geta boðið fjölda nýrra sýnenda velkomna, eins og NP Innovation, Protec, Norworx og Fagerberg. „Danski skálinn er að fyllast hratt, 14 fyrirtæki frá Danmörku hafa þegar staðfest þátttöku sína og í færeyska skálanum er aðeins eitt pláss laust. Margir af þeim sem hafa verið sýnendur til langs tíma hafa þegar staðfest að þeir muni taka þátt í haust og með talsverðri endurskipulagningu er nú meira pláss laust fyrir sýnendur í Fífunni.“ Þátttaka erlendra sýnenda verður áberandi að þessu sinni. Nú þegar hafa sýnendur frá 15 löndum staðfest sína þátttöku og fleiri lönd eiga eftir að bætast við. „IceFish sjávarútvegssýningin hefur alltaf verið talið ómissandi viðburður og eins konar hátíðarhöld fyrir íslenskan sjávarútveg og fiskeldi. Mikil þátttaka er frá innlendum samtökum og stofnunum og á þessu ári verður Íslenski sjávarklasinn samstarfsaðili sýningarinnar,“ segir Snowden. Svæði þar sem lögð er áhersla á lagareldi er nýtt af nálinni á næstu sýningu. Þar verður aðgengilegt rými jafnt fyrir erlenda sem innlenda sýnendur. Fjöldi erinda verður fluttur á IceFish ráðstefnunni sem fer fram samhliða sýningunni. Um er að ræða þekkta fyrirlesara, jafnt íslenska sem erlenda. Einum degi verður varið til ráðstefnu um fiskeldi undir yfirskriftinni „Að knýja áfram sjálfbæran vöxt“. Ráðstefnan 100% fiskur fer einnig fram. Báðar bjóða þær upp á samþætta sýn á þróun, tækni og tækifæri sem móta framtíðina og endurspegla þemu sem eru kjarninn á IceFish sýningunni. Önnur nýjung í tengslum við IceFish sýninguna er gagnvirka vefsíðan www.icefish.is . Hún er uppfærð allan ársins hring og er einkar gagnleg fyrir smærri fyrirtæki sem geta nýtt sér tækifæri þar til viðskiptatengsla bæði fyrir og eftir sýninguna.

Share this article