- What: IceFish 2026 offers scholarships to students in marine science
- Impact: Three students received financial support for their studies
Námsstyrkir sjávarútvegssýningarinnar IceFish 2026, sem verður haldin 22. til 24. september næstkomandi, voru veittir í Íslenska sjávarklasanum í gær. Styrkina hlutu nemendur við Fisktækniskólann í Suðurnesjabæ. Þeir eru Katarzyna Staszek, Ewa Jaros and Malgorzata Barbara Sworowska. Í frétt frá IceFish segir að verðlaunahafarnir séu tákn um skuldbindingu og fjárfestingu IceFish 2026 við framtíðarþróun í fiskveiðum og fiskeldi á Íslandi. Verðlaunahafarnir hljóta hver 300.000 króna námsstyrk til að standa straum af kostnaði við sitt nám. Í gær var fyrri hluti styrksins afhentur ásamt viðurkenningarskjali en seinni helmingur verðlaunanna verður veittur í september á IceFish-verðlaunahátíðinni sem fer fram á fyrsta kvöldi IceFish sjávarútvegssýningarinnar 22. september næstkomandi. Verðlaunahafarnir leggja allir stund á nám í gæðastjórnun við Fisktækniskólann og starfa við fiskvinnslu hér á landi; Katarzyna hjá Brim í Reykjavík, Ewa hjá Jakob Valgeir í Bolungarvík og Malgorzata hjá Nýfisk í Sandgerði. Sally Wattam, viðburðastjóri hjá Mercator Media, skipuleggjandi IceFish sjávarútvegssýningarinnar segir skipuleggjendur sýningarinnar leggja mikla áherslu á að sýna stuðning í verki við sjávarútvegs- og fiskeldisiðnaðinn á Íslandi. „Það skiptir okkur einnig máli að styðja þau samfélög sem byggja á sjávarútvegi og ekki síst við yngri kynslóðir þátttakenda í sjávarútvegi sem eru að hefja starfsferil sinn og vilja leggja sitt af mörkum,” segir Wattam. Klemenz Sæmundsson, skólastjóri Fisktækniskólans, segir námsstyrki IceFish mikilvæga vegna þess að þeir stuðli að velgengni námsmannanna sem þá hljóta og auki vitund um starfsemi Fisktækniskólans. „Menntun er gríðarlega mikilvæg fyrir atvinnugreinina og þessi verðlaunaafhending sýnir að IceFish og atvinnugreinin lætur þau mál skipta sig máli og það er okkur mjög mikilvægt.”