Innlent | mbl | 30.4.2026 | 16:30 Unglingadeild Klettaskóla flytur í Korpu í haust Ákvörðunin var tekin í kjölfar mikils plássleysis í Klettaskóla, enda umtalsvert fleiri nemendur við skólann en hann var byggður fyrir. mbl.is/Hari Setja bókamerki Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt að opna nýja starfseiningu Klettaskóla í fyrrum Korpuskóla frá og með næsta hausti, 2026, vegna vaxandi nemendafjölda við skólann. Unglingadeild skólans og frístundastarf Öskju verða í Korpuskóla og er unnið að breytingum á húsnæðinu til að mæta þörfum nemenda og starfsfólks. Frá þessu segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg , en þar er jafnframt greint frá því að ákvörðunin hafi verið tekin í kjölfar mikils plássleysis í Klettaskóla og sé í samræmi við niðurstöður vinnu haghóps sem skilaði áliti árið 2023. Í þeim hópi sátu fulltrúar starfsfólks Klettaskóla, foreldrafélags, skólaráðs, Þroskahjálpar, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og foreldra nemenda. Starfsemi hefjist í haust Unnið hefur verið að undirbúningi breytinganna frá því í byrjun árs og eru framkvæmdir í Korpuskóla á áætlun. Gert er ráð fyrir að þeim ljúki fyrir 1. ágúst 2026 og að starfsemi hefjist í haust. Samkvæmt fyrirliggjandi útfærslu verður nemendum Klettaskóla skipt milli húsnæða skólaárið 2026-2027 með þeim hætti að 1.-7. bekkur verði áfram í núverandi húsnæði Klettaskóla, en 8.-10. bekkur flytjist í nýja starfseiningu Klettaskóla í Korpu. Þá verður frístundastarf skólans endurskipulagt með þeim hætti að Gulahlíð, sem þjónustar 1. upp í 4. bekk, verður áfram í Vesturhlíð 3 en mun flytjast inn í skólann þegar aðstæður leyfa. Félagsmiðstöðin Askja, sem nemendur í 8.-10. bekk sækja, verður staðsett í Korpu og mun félagsmiðstöðin Hekla flytja frá Þorragötu í aðstöðu Öskju í Klettaskóla. Bygging nýs sérskóla í bígerð Skólaárið 2025–2026 var 141 nemandi skráður í Klettaskóla, þrátt fyrir að húsnæði skólans hafi upphaflega verið hannað fyrir 80–90 nemendur, að því er fram kemur í tilkynningunni. Ljóst sé að nemendafjöldi hafi vaxið hratt, en fyrir haustið 2026 lágu fyrir umsóknir frá 41 nýjum nemanda. Samhliða vinnu innan Klettaskóla er unnið að stefnumótun sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um byggingu nýs sérskóla og er gert ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir í árslok 2026. Korpuskóli mun hýsa starfsemi unglingadeildar Klettaskóla. Ljósmynd/mbl.is Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Trump hrósaði Karli: „Merkasti konungurinn“ Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Segir bakvörð Liverpool þann besta í sögunni Unglingadeild Klettaskóla flytur í Korpu í haust Úlfari Steindórssyni veitt nafnbótin Úlfar-san Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup „Ég segi nei“ Myndskeið: Rómantískur Drakúlaleikur á Alþingi Segir örorkubætur á sjálfstýringu Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV Unnu í raun í Víkingalottóinu Líkur á misnotkun veikindaréttar Biðu ekki boðanna og níddust á samfélaginu Húsnæði Kjötborgar til sölu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Trump hrósaði Karli: „Merkasti konungurinn“ Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Segir bakvörð Liverpool þann besta í sögunni Unglingadeild Klettaskóla flytur í Korpu í haust Úlfari Steindórssyni veitt nafnbótin Úlfar-san Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Hallærisplanið er ekki að virka Eru tilbúin og þyrstir í að komast heim Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV Unnu í raun í Víkingalottóinu Líkur á misnotkun veikindaréttar Biðu ekki boðanna og níddust á samfélaginu Húsnæði Kjötborgar til sölu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“