Aðspurður vill Runólfur Sanders, forstjóri S4S, ekki meina að hörð samkeppni við erlenda netverslunarrisa hafi gert fyrirtækinu erfitt fyrir. Samkeppnin hafi þvert á móti aukið væntingar viðskiptavina og þannig styrkt S4S og gert samstæðuna enn öflugri. „Við erum samkeppnishæf í verði og leggjum mikla áherslu á þjónustu og upplifun, bæði í verslunum og á netinu. Neytendahegðun hefur þróast í átt að meiri netverslun, þar sem verð, þægindi og aðgengi skipta miklu máli, ásamt breiðara úrvali sem erlendir aðilar geta oft boðið. Við höfum brugðist við með því að efla netverslunina okkar enn frekar og aukið úrvalið, og munum halda áfram á þeirri braut.“ Runólfur geri ráð fyrir að rekstrarumhverfið verði áfram krefjandi til skemmri tíma en kveðst mjög bjartsýnn á rekstur S4S til framtíðar. „Við erum að styrkja félagið með nýjum vörumerkjum, öflugum innviðum og skýrum fókus. Þær aðgerðir sem við höfum ráðist í eru þegar farnar að skila sér og við sjáum góð tækifæri til áframhaldandi vaxtar.“ Í pípunum um nokkurt skeið Á aðalfundi S4S var Runólfur ráðinn forstjóri samstæðunnar. Hann tekur við starfinu af stofnandanum Pétri Þór Halldórssyni sem var um leið kjörinn stjórnarformaður. Runólfur hefur gegnt starfi fjármálastjóra S4S frá árinu 2022 og framkvæmdastjóra frá árinu 2024. Hann hefur víðtæka reynslu af fjármálum og rekstri en áður starfaði hann hjá Deloitte þar sem hann var einn af eigendum félagsins. „Við Pétur höfum átt mjög gott og náið samstarf og munum halda því áfram í breyttum hlutverkum. Þessi breyting hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið og kom því ekki óvænt upp,“ segir Runólfur spurður um hvernig forstjóraskiptin komu til. Hann er spenntur fyrir komandi tímum hjá samstæðunni. „Ég þekki reksturinn og fólkið afar vel og það er mikill styrkur. Við erum með öflugt teymi og skýra stefnu um áframhaldandi vöxt. Þetta er mjög skemmtilegt og dýnamískt umhverfi, þar sem hlutirnir þróast hratt og við þurfum stöðugt að vera á tánum. Ég hef fulla trú á þeim tækifærum sem framundan eru og það er mikil orka í hópnum fyrir næstu skrefum.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .