Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Runólfur Sanders ráðinn forstjóri S4S

Read Full Article →

Ný stjórn var kosin á aðalfundi S4S ehf. þar sem Pétur Þór Halldórsson, stofnandi S4S og einn af eigendum félagsins, var kjörinn stjórnarformaður. Samhliða því var Runólfur Sanders ráðinn forstjóri S4S. Runólfur hefur gegnt starfi fjármálastjóra S4S frá árinu 2022 og framkvæmdastjóra frá árinu 2024. Hann hefur víðtæka reynslu af fjármálum og rekstri en áður starfaði hann hjá Deloitte þar sem hann var einn af eigendum félagsins. Pétur er stofnandi S4S og hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu og vexti félagsins frá upphafi. Rekja má rætur félagsins aftur til ársins 1991 þegar Pétur hóf heildsölu á vörum sem síðar urðu grunnur að starfsemi S4S. Frá þeim tíma hefur félagið vaxið jafnt og þétt og þróast í eitt stærsta smásölufyrirtæki landsins. Sjá einnig S4S tekur formlega við Lindex S4S rekur meðal annars verslanirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers, Ellingsen, AIR og S4S Premium Outlet. Verslanir félagsins eru samtals 11 talsins. Þá rekur félagið einnig fjölda netverslana, þar á meðal Skór.is, Ellingsen.is, Air.is, BRP.is, PremiumOutlet.is og Lindex.is.

Share this article