Innlent | mbl | 1.5.2026 | 22:50 Bensínverð lækkar um 11% Lítraverð íslenskra olíufélaga á eldsneyti hefur lækkað um 11% að meðaltali, en Costco hefur lækkað verð sín um í kringum 8%. Morgunblaðið/Karítas Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Bensínfélög á Íslandi hafa flest skilað verðlækkunum til neytenda eftir að lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr 24% í 11% tók gildi í nótt. Lækkun eldsneytisverðs Costco er þó hlutfallslega lægri en verðlækkanir annarra eldsneytisfyrirtækja. Lítraverð íslenskra olíufélaga á eldsneyti hefur lækkað um 11% að meðaltali, en Costco hefur lækkað verð sín um í kringum 8% og kostar bensínlítrinn í Kauptúni nú 198,4 krónur – einungis um fjórum krónum minna en lítirinn á ódýrustu stöðvum Orkunnar. Samkeppniseftirlitið fylgist nú grannt með verðhækkunum eldsneytisfyrirtækjanna til þess að tryggja að verðlækkunin skili sér til neytenda og mun eftir helgi senda eldsneytisfyrirtækjum bréf þar sem óskað verður nauðsynlegra upplýsinga í tengslum við lögin. Frétt af mbl.is Eldsneytisfyrirtæki fá bréf eftir helgi Frétt af mbl.is Lækkun eldsneytisgjalda skili sér beint til neytenda Lækkun Costco þremur prósentustigum lægri Eldsneytisfélög lækkuðu lítraverð sín á bensíni að meðaltali um 26 krónur, eða rúm 11 prósent, og lítraverð á dísilolíu um 27 krónur að jafnaði, eða tæp 11 prósent. Í Costco kostar bensínlítrinn nú 198,4 krónur og lækkar um tæplega 17 krónur úr 215 krónum, en dísillítrinn lækkar í verði um 22,5 krónur og kostar nú 240,5 krónur. Því nemur lækkun á bensínverði Costco tæplega 7,8 prósentum og dísilverði 8,5 prósentum. Frétt af mbl.is Bensínverð hefur hækkað um 13% frá áramótum Skýrist af heimsmarkaðsverðshækkunum Costco er sá söluaðili eldsneytis á Íslandi sem mest hefur hækkað verð sitt í krónum talið á árinu að sögn Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda, og kostar bensínlítrinn nú einungis fjórum krónum minna í Kauptúninu en á ódýrustu stöðvum Orkunnar. Hann segir verðhækkanir Costco skýrast af því að fyrirtækið byggi verðskrá sína á heimsmarkaðsverði á olíu í meiri mæli en íslensk eldsneytisfyrirtæki, en eldsneytisverð hefur hækkað gríðarlega frá því að Íranar lokuðu fyrir umferð um Hormússund vegna stríðsins sem nú geisar milli Írans og Bandaríkjanna og Ísrael. Frétt af mbl.is Olíuverð á uppleið þar sem friðarhorfur dvína Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bensínverð lækkar um 11% Kostir og gallar við ESB-aðild Farfuglar koma fyrr til landsins Sonur norsku sendierindrekanna fyrirfór sér Úr Garðabæ í Mosfellsbæ Umræðan Kópavogur – okkar heimili Fyrirtæki og stjórnvöld – þið eigið leik Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Neitar að klæðast skotheldu vesti eftir banatilræði Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Akranes: Kappræður oddvita „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Mest lesið Í gær Í vikunni Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Herjólfur III verður klár í næstu viku Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Nýjast á mbl.is » Bensínverð lækkar um 11% Kostir og gallar við ESB-aðild Farfuglar koma fyrr til landsins Sonur norsku sendierindrekanna fyrirfór sér Úr Garðabæ í Mosfellsbæ Umræðan Kópavogur – okkar heimili Fyrirtæki og stjórnvöld – þið eigið leik Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stríðsátökum Bandaríkjanna og Írans teljist lokið Meira safnast en vonir stóðu til en spáin góð Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Herjólfur III verður klár í næstu viku Mest lesið Í gær Í vikunni Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Herjólfur III verður klár í næstu viku Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum