Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bensínverð hefur hækkað um 13% frá áramótum

Read Full Article →

Bensínverð hefur hækkað um 24 krónur á lítrann, um þrettán prósent, frá áramótum, að því er fram kemur í verðlagseftirliti Alþýðusambands Íslands. Þar er miðað við vikumeðaltal lægsta bensínverðs hverju sinni. Í tilkynningu frá ASÍ segir að hækkunin hafi meira og minna öll orðið í mars eftir að stríð hófst í Mið-Austurlöndum. Verðlagseftirlitið segir að sú hækkun hafi að litlu leyti komið fram í verðbólgumælingum því bensínverð hafi hækkað um níu prósent eftir að síðustu verðbólgumælingu lauk. ASÍ væntir þess að bensínverð lækki og vísar til þess að heimsmarkaðsverð hafi þegar lækkað um fimmtán prósent eftir að samið var um vopnahlé. Costco hefur hækkað bensínverð meira en aðrir, um 39 krónur.RÚV / Ragnar Visage

Share this article