Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bensín­verð upp um 9% frá síðustu mælingu Hag­stofunnar

Read Full Article →

Vikumeðaltal lægstu bensínverða hefur hækkað um 24 krónur eða tæp 13% frá upphafi árs, samkvæmt greiningu ASÍ. Hækkunin kom meira og minna öll fram í mars, í framhaldi af stigvaxandi hernaðaraðgerðum gegn Íran. Bent er á að einungis hluti af verðhækkunum sé kominn fram í mælingum Hagstofunnar. Verð hefur hækkað um 9% frá því verðtaka vegna vísitölu neysluverðs lauk þann 13. mars, samkvæmt ASÍ. „Því er ljóst að bein áhrif verðhækkana eru einungis komin að hluta fram í mælingum Hagstofunnar til grundvallar vísitölu neysluverðs.“ Alþýðusambandið væntir þess að vopnahlé í Íran muni leiða til lækkana á bensínverði. Bent er á að olíuverð á heimsmarkaði hafi lækkað um 14-15% í dag.

Share this article