Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Bensínverð hefur hækkað um 13% frá áramótum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.4.2026 | 12:08 Bensínverð hefur hækkað um 13% frá áramótum Bensínverð hefur hækkað um 13% frá áramótum. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Bensínverð hefur hækkað um 13 prósent frá áramótum að því er fram kemur í tilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ. „Vikumeðaltal lægstu bensínverða hefur hækkað um 24 krónur (tæp 13%) frá upphafi árs. Hækkunin kom meira og minna öll fram í mars, í framhaldi af stigvaxandi hernaðaraðgerðum gegn Íran,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að verðhækkanirnar séu einungis að hluta komnar fram í mælingum Hagstofunnar, en verð hafi hækkað um 9% frá því verðtöku vegna vísitölu neysluverðs lauk þann 13. mars. Þó megi vænta þess að vopnahlé í Íran muni leiða til lækkana á bensínverði en verð á heimsmarkaði hefur nú þegar lækkað um 15% frá því það var samþykkt í gær. Grafík/ASÍ Í upphafi marsmánaðar var 95 oktana bensín ódýrast hjá Costco (168,1 kr./l), en dýrast hjá Olís í Hrauneyjum (219,2 kr./l). Því munaði rúmlega 51 krónu á hæsta og lægsta fáanlega verði. Þann 7. apríl var eldsneytið enn ódýrast hjá Costco (207,1 kr./l) og dýrast í Hrauneyjum (251,2 kr./l), en munurinn hefur dregist saman og er nú rúmar 44 krónur. Verðhækkanir hjá Costco voru umtalsvert umfram aðra söluaðila, eða um tæpar 39 krónur. Lægstu verð hækkuðu á bilinu 27 til 30 krónur frá mars hjá söluaðilum með fleiri en eina dælustöð. Dýrustu stöðvar söluaðila hækkuðu um sömu krónutölu, nema í tilfelli Atlantsolíu. Þar giltu sérstök afsláttarkjör frá 30. mars til 7. apríl og lítraverð það sama á öllum stöðvum. Sé litið fram hjá afsláttarkjörum nam hækkun dýrustu Atlantsolíustöðva 26,5 krónum á tímabilinu 1.–29. mars. Áhrif hækkana ekki að fullu komin í verðbólgumælingar Fram kemur í tilkynningunni að verð á bensíni hafi hækkað um 5,8% í mars samkvæmt Hagstofunni og námu áhrif á vísitölu neysluverðs 0,1% til hækkunar. Graf/ASÍ Verð á dísil hækkaði um 6,9% á sama tímabili. Verðtaka Hagstofunnar stóð yfir á tímabilinu 9.–13. mars en frá þeim tíma hefur meðaltal lægstu verða á bensíni hækkað um rúmlega 8%. Því er ljóst að bein áhrif verðhækkana eru einungis komin að hluta fram í mælingum Hagstofunnar til grundvallar vísitölu neysluverðs. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Áfram hjá Liverpool eftir allt saman? Gerðu árásir eftir að vopnahlé tók gildi Bensínverð hefur hækkað um 13% frá áramótum Authorities have yet to respond to ESA Um 15 lönd taka þátt í opnun Hormússunds Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Hvar liggja mörkin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump: „Öll siðmenning verður þurrkuð út í nótt“ Viðræður um vopnahlé haldnar í Pakistan Þak fauk af í heilu lagi Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Vatn flæðir yfir vegi: Hafa varla undan Afstaðan í andstöðu við kjósendur „Orð eru til alls fyrst“ Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Þrjú innbrot náðust á upptöku í dag Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » Áfram hjá Liverpool eftir allt saman? Gerðu árásir eftir að vopnahlé tók gildi Bensínverð hefur hækkað um 13% frá áramótum Authorities have yet to respond to ESA Um 15 lönd taka þátt í opnun Hormússunds Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Hvar liggja mörkin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi „Orð eru til alls fyrst“ Ljósblossar á tunglinu Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Vatn flæðir yfir vegi: Hafa varla undan Afstaðan í andstöðu við kjósendur „Orð eru til alls fyrst“ Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Þrjú innbrot náðust á upptöku í dag Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón

Share this article