Innlent | mbl | 2.5.2026 | 18:45 Finnar hefja upp unga raust sína Finnarnir kyrja við raust á meðan Keskinen veitir viðtal. Ljósmynd/Aðsend Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Við erum einmitt á æfingu núna í stóru kirkjunni,“ segir Finninn Miska Keskinen frá Turku í samtali við mbl.is og á þar vitanlega við Hallgrímskirkju enda raunverulegt nafn hennar fáum gestum landsins tamt á tungu. Keskinen þessi er hins vegar enginn venjulegur ferðamaður heldur einn átta foreldra sem fylgja 30 finnskum kórdrengjum kórsins Chorus Cathedralis Iuniorum, á aldrinum sjö til 22 ára, í tónleikaför til landsins þar sem þeir blása til vortónleika með Drengjakór Reykjavíkur á morgun, sunnudag, í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir eru öllum opnir án aðgangseyris og hefjast klukkan 12.30 en kórarnir munu jafnframt syngja saman í messunni sem hefst klukkan 11.00 og verður sungið á íslensku, finnsku og ensku en Keskinen segir finnsku drengina hafa spreytt sig á íslenskum sönglögum upp á síðkastið og munu þeir orðnir allsjóaðir í málinu nú. Niemi kórstjóri klórar sér í höfðinu framan við veglegt kirkjuorgelið. Ljósmynd/Aðsend Löng hefð fyrir ferðum drengjakóra Meðal verka á efnisskránni eru Smávinir fagrir , Siglingavísur og Rauði riddarinn á íslensku en Suomenlaulu og Herra kädelläsi á finnsku að ógleymdum verkunum Seal lullaby og All things bright and beautiful á ensku og er fátt eitt þá aðeins nefnt. „Löng hefð er fyrir ferðalögum evrópskra drengjakóra í heimsóknir hverjir til annarra og það var fyrir nokkrum árum sem við tókum að velta því fyrir okkur að fara til Íslands,“ svarar Keskinen, inntur eftir því hver forsaga málsins hafi verið. „Við heyrðum það frá öðrum drengjakór í Tampere, sem hafði komið hingað, að drengjakór væri á Íslandi. Þessi kór í Tampere átti hingað frábæra heimsókn svo við ákváðum að við yrðum að fara líka,“ útskýrir hann í framhaldinu. Æfingin í Hallgrímskirkju fyrir stóra daginn á morgun, tónleika finnsks og íslensks drengjakórs, fyrst í messu klukkan 11.00 og á ný klukkan 12.30. Ljósmynd/Aðsend Íslendingar hlýir og hjálpsamir „Fyrsta æfingin okkar saman stendur einmitt yfir núna, þessir kórar hafa aldrei hist og á morgun syngja þeir saman, 45 drengir,“ segir Keskinen og bætir því við að kórstjóri Finnanna sé Tero Niemi sem væntanlega mun galdra það besta fram hjá kórdrengjum en á sögutíma fornsagna voru Finnar sagðir rammgöldróttir eins og Ólafur helgi Noregskonungur og menn hans máttu reyna er þeir héldu í víking til Finnlands og fengu naumlega beitt fyrir Bálagarðssíðu, eins og suðvesturströnd Finnlands hét í fornum sögum, en Sighvatur skáld Þórðarson orti um förina: Hríð varð stáls í stríðri strǫng Herdala gǫngu Finnlendinga at fundi fylkis niðs in þriðja. En austr við lô leysti leið víkinga skeiðar; Bálagarðs at borði brimskíðum lá síða. Gestirnir halda heim á leið á þriðjudaginn en á mánudag halda þeir út í íslenska náttúru í skoðunarferð. „Ég held að við höfum farið það sem kallast Gullni hringurinn í gær, við erum að sýna drengjunum heiminn, þetta snýst ekki bara um söng heldur líka umhverfið,“ segir viðmælandinn. Hann segir Ísland vindasamt miðað við það sem Finnarnir eru vanir, „en fólkið hér er svo hlýtt og hjálpsamt og við höfum skóga, þið hafið þá ekki“, segir Keskinen og hlær við raust. „Ég held líka að sjórinn frjósi ekki hjá ykkur,“ segir hann kíminn og bætir því að lokum við aðspurður að finnsku gestunum hugnist land og þjóð ákaflega vel. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tímabundin þrenging á Suðurlandsbraut Kristall Máni getur ekki hætt að skora Finnar hefja upp unga raust sína Myndir: Hlauparar streymdu til Vestmannaeyja Risasigur Arsenal setur pressu á City Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Stjórnmálamenn vildu Spaugstofuna út Farfuglar koma fyrr til landsins Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Mest lesið Í gær Í vikunni Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Vasaþjófarnir snúnir aftur 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög Dæmdur í 10 mánaða fangelsi eftir 14 ára þráhyggju Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Herjólfur III verður klár í næstu viku Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Tímabundin þrenging á Suðurlandsbraut Kristall Máni getur ekki hætt að skora Finnar hefja upp unga raust sína Myndir: Hlauparar streymdu til Vestmannaeyja Risasigur Arsenal setur pressu á City Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Akranes: Kappræður oddvita Mest lesið Í gær Í vikunni Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Vasaþjófarnir snúnir aftur 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög Dæmdur í 10 mánaða fangelsi eftir 14 ára þráhyggju Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Herjólfur III verður klár í næstu viku Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás