Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Óvissa sem tekur við

Read Full Article →

Í nýrri skýrslu hagtalnanefndar, sem falið var að fjalla um áskoranir og tækifæri í umgjörð hagtölugerðar hér á landi, er bent á ýmsa veikleika Hagstofunnar. Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að innlend hagtölugerð skorti skýra og formlega umgjörð. Samhæfing hagtölugerðar sé þá mjög takmörkuð og við núverandi skipan sé ekkert skipulagt innlent hagtölukerfi til staðar. Þróun síðustu ára sýni að skortur á samhæfingu í innlendri hagtölugerð hafi valdið óþarfa kostnaði, óvissu og hættu á að mikilvægar ákvarðanir byggi á misvísandi upplýsingum. Í upphafi árs var greint frá því að fjármálastefna hins opinbera myndi markast af þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands í stað þjóðhagsspár Hagstofu Íslands. Í samtali við Morgunblaðið sagði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, að fyrir því væru ýmsar ástæður, þar á meðal að hagspá Seðlabankans væri betur unnin og vandaðri en spá Hagstofunnar. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir þá ákvörðun draga það vel fram hvernig ráðherrann metur stöðuna en hann sé ekki einn um þá skoðun. „Skýrslan er fín að því leyti að hún dregur fram að þetta er kerfislægur vandi þannig það er ekki bara við Hagstofuna að sakast, hún hefur farið í ýmis umbótaverkefni sem hafa skilað framförum. En það þarf bara miklu meira til,“ segir Sigurður. Stjórnvöld mættu þá setja málið í meiri forgang. „Öllum er ljóst að staðan er ekki ásættanleg og þess vegna hefðum við talið eðlilegt að sjá meiri eftirfylgni af hálfu stjórnvalda varðandi úrbætur,“ segir Sigurður. Þá vekur það athygli að ekkert samráð var haft við atvinnulífið við gerð skýrslunnar, sem er að sögn Sigurðar lýsandi fyrir viðhorf ríkisins. Góðu fréttirnar séu þó þær að málið hafi nú verið sett á oddinn og að ráðist verði í úrbætur en nefndin leggur til fjórar tillögur til úrbóta. „En á sama tíma höfum við áhyggjur af því að það taki mjög langan tíma að koma þessu í lag, sá tími er mældur í árum. Þannig að á meðan verðum við í óvissu og byggjum stórar ákvarðanir á gögnum sem eru ekki traust.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article