Innlent | Sunnudagsblað | 3.5.2026 | 7:00 Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Unnur Ösp Stefánsdóttir. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Halldór Laxness Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eins konar æði gripið Íslendinga Nemendur taka betur í Laxness Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Halldór Laxness og nautnalyfið bjór » Fleiri tengdar fréttir Unnur Ösp Stefánsdóttir, höfundur og flytjandi verksins Salka – ástin og dauðinn , sem er sýnt um þessar mundir á Söguloftinu í Borgarnesi, segir að sá mikli Laxness-áhugi sem kviknaði í kjölfar umfjöllunar Morgunblaðsins um brotthvarf verka skáldsins af leslistum framhaldsskóla síðasta haust hafi veitt verkinu mikinn meðbyr. Um er að ræða einleik upp úr fyrri bók Sölku Völku . „Þegar Kjartan Ragnarsson hringdi í mig fyrir tveimur árum og stakk upp á þessu þá var þetta svolítið fjarri allri umræðu, og bara fjarri mínum huga. Ég hafði auðvitað vissar áhyggjur af því að það væri ekkert endilega einhver gríðarlegur áhugi, sérstaklega hjá ungu fólki, á því að fara að sjá Sölku Völku í Landnámssetrinu,“ segir Unnur. „Svo fyrir algjöra tilviljun, þegar ég er búin að gera leikgerðina og er að fara að hendast af stað með æfingar, þá hefst þessi umræða. Og það kveikir á svo ótrúlega mikilvægum hlutum, bara fyrir okkur öll.“ Frétt af mbl.is Nemendur taka betur í Laxness Ræddi málið við son sinn Unnur segist þá sjálf hafa rætt málið við son sinn sem er í Verzlunarskóla Íslands og komist að því að engin skáldsaga eftir Laxness væri þar á kennsluskrá. „Mér brá svo að heyra það því það breyttist allt hjá mér á sínum tíma þegar ég las Sjálfstætt fólk og Sölku Völku.“ Uppselt hefur verið á allar sýningar á einleik Unnar frá því hann var frumsýndur í febrúar og munu sýningar halda áfram á næsta leikári. Hún segir að fyrst um sinn hafi áhorfendur fyrst og fremst verið eldra fólk en nú séu miklu yngri áhorfendur farnir að mæta. „Þau bara skilja þetta alveg og elska þetta,“ segir Unnur og bætir við að henni þyki sérlega gaman að ná að kveikja áhuga ungs fólks á verkum Nóbelsskáldsins. Frétt af mbl.is Stórar tilfinningar upp á líf og dauða Sýna fram á erindi skáldsins Sýna þessar miklu vinsældir sýningarinnar ekki að Laxness á enn mikið erindi? „Heldur betur og meira en það,“ segir Unnur. „Auðvitað er Salka Valka rosaleg spútnikbók. Ég er nú ekki að segja að Salka sé ekki krefjandi en hún er fáránlega nútímaleg að mínu mati.“ Þá segir Unnur að einleikjaformið geri henni kleift að segja söguna á aðgengilegan hátt, þrátt fyrir að hún haldi sig við upprunalegan texta Halldórs. „Það eru mjög margir sem byrja á því að koma með foreldrum sínum eða afa og ömmu og fara svo bara beint að lesa bókina og fá áhuga á Halldóri. Það er náttúrulega bara mesta hrósið sem maður getur hugsað sér. Að maður nái að kveikja áhuga á Laxness en ekki drepa hann.“ Fjallað er ítarlega um Laxness-æðið sem gripið hefur þjóðina í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Lestu umfjöllunina í heild sinni: Tengdar fréttir Halldór Laxness Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eins konar æði gripið Íslendinga Nemendur taka betur í Laxness Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Halldór Laxness og nautnalyfið bjór » Fleiri tengdar fréttir Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Kokhraust Vonn svarar föður sínum Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér „Gestir sögðust aldrei hafa upplifað annað eins: Kvöldið á Hótel Geysi vakti athygli“ Af ástum Hrefnu og Sölva Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi Spáð í spilin fyrir tímamótafund Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Mokuðu út hamborgurum í New York Þrír fengu tæpa hálfa milljón Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Eins konar æði gripið Íslendinga Vinstrimenn setja spurningamerki við ESB Endurbætur á skólahúsnæði á oddinum Bjartsýnin eykst hjá vallarstjórum „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Kokhraust Vonn svarar föður sínum Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér „Gestir sögðust aldrei hafa upplifað annað eins: Kvöldið á Hótel Geysi vakti athygli“ Af ástum Hrefnu og Sölva Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Misvísandi skilaboð olíufélaganna Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks Eins konar æði gripið Íslendinga Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Mokuðu út hamborgurum í New York Þrír fengu tæpa hálfa milljón Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Eins konar æði gripið Íslendinga Vinstrimenn setja spurningamerki við ESB Endurbætur á skólahúsnæði á oddinum Bjartsýnin eykst hjá vallarstjórum „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás