Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Stakk föður barnsmóður sinnar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 3.5.2026 | 18:10 Stakk föður barnsmóður sinnar Maðurinn réðst á brotaþola þegar hann var sofandi. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Kólumbískur karlmaður hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps fyrir að hafa veist að föður barnsmóður sinnar á heimili hans og stungið hann endurtekið í höfuð og líkama. Maðurinn veittist að brotaþola þar sem hann taldi hann hafa brotið kynferðislega gegn syni sínum. Hann kvaðst hafa farið heim til brotaþola til að gæta hagsmuna sonar síns. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóminn í lok mars en atvikið átti sér stað í október í fyrra. Lögreglu barst tilkynning um málið aðfaranótt 19. október þegar maður hringdi og sagði að brotist hefði verið inn til hans og ráðist á hann þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu. Grunlaus um tengsl við árásarmann Þegar lögreglu bar að garði var brotaþoli alblóðugur og með sýnilega áverka. Hann lýsti því við lögreglumenn að hann hefði verið sofandi heima hjá sér þegar hann vaknaði við bank á efri hæðinni en fór aftur að sofa. Stuttu síðar vaknaði hann við að sængin var rifin af honum og ráðist var á hann. Hann lýsti því að árásarmaðurinn hafi verið svartklæddur og með grímu fyrir andliti. Brotaþoli kvaðst ekki vita hver árásaraðilinn hafi verið og taldi að hann hafi farið húsavillt. Þegar lögregla spurði brotaþola hvort hann þekkti árásarmanninn með nafni kvaðst hann vera grunlaus um að barnsfaðir dóttur sinnar væri árásarmaðurinn. Tók með sér plastbyssu og hníf Fyrir dómi lýsti ákærði því að umrætt kvöld hafi hann farið út til að fá sér ferskt loft. Hann tók með sér plastbyssu og hníf og sagðist allt í einu hafa verið mættur heim til brotaþola. Hann kvaðst hafa farið þangað þar sem hann upplifði skrýtnar breytingar á hegðun sonar síns varðandi kynfæri sín. Ákærði sagðist fyrir dómi ekki hafa ætlað að skaða brotaþola heldur aðeins hóta honum. Hann sagðist hafa beðið fyrir utan heimili brotaþola og fylgst með honum. Bankaði hann en enginn kom til dyra. Þá greip hann í hurðarhúninn þar sem dyrnar voru ólæstar en hann kvaðst ekki muna hvað hafi gerst næst annað en að hann hafi tekist á við brotaþola. Setið í gæsluvarðhaldi í sjö mánuði Brotaþoli segir málið fjölskylduharmleik. Maðurinn sé ekki slæmur maður en að hann eigi þó forsögu. Sagði brotaþoli ákærða hafa beitt dóttur sína andlegu og líkamlegu ofbeldi. Eins og fyrr segir var ákærði dæmdur í fimm ára fangelsi. Gæsluvarðhald verður dregið frá refsingunni. Ákærði hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 19. október. Þá er ákærða gert að greiða brotaþola tvær og hálfa milljón. Hér má lesa dóm héraðsdóms . Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » FH - Fram, staðan er 2:1 Drápsmennirnir 15 og 16 ára Stakk föður barnsmóður sinnar Naumur Blikasigur í Vestmannaeyjum Fór á skeljarnar á Valentínusardaginn Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spáð í spilin fyrir tímamótafund Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög Vinstrimenn setja spurningamerki við ESB Misvísandi skilaboð olíufélaganna Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Allir sögðu nei nema Heiða Björg Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Maðurinn fannst látinn við Háafoss Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Nýjast á mbl.is » FH - Fram, staðan er 2:1 Drápsmennirnir 15 og 16 ára Stakk föður barnsmóður sinnar Naumur Blikasigur í Vestmannaeyjum Fór á skeljarnar á Valentínusardaginn Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bjartsýnin eykst hjá vallarstjórum Misvísandi skilaboð olíufélaganna Vinstrimenn setja spurningamerki við ESB Spáð í spilin fyrir tímamótafund Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Allir sögðu nei nema Heiða Björg Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Maðurinn fannst látinn við Háafoss Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga

Share this article