Bandarískir embættismenn eiga í mjög uppbyggilegum samræðum við íranska kollega sína um leiðir til að ljúka stríðinu sem hófst 28. apríl. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá þessu í færslu á Truth Social í kvöld og bætti við að viðræðurnar gætu leitt til jákvæðrar niðurstöðu fyrir alla. Utanríkisráðuneyti Írans tilkynnti formlega fyrr í kvöld að Bandaríkjamönnum hefði verið afhent friðartillaga í fjórtán liðum og þeir hefðu brugðist við henni með milligöngu pakistanskra yfirvalda. Fulltrúar ríkjanna hafa hist einu sinni í Pakistan frá því vopnahlé komst á 8. apríl og síðan hefur ríkt pattstaða í samningaviðræðum. Íranar hafa haldið Hormússundi í heljargreipum frá upphafi stríðsins og þannig lokað fyrir streymi hráolíu, jarðgass og áburðar til um fimmtungs jarðarbúa. Um það bil 900 skip sátu föst á Persaflóa í lok apríl samkvæmt upplýsingum AXSMarine, sem fylgist með skipaumferð heimsins. Trump sagði í kvöld að Bandaríkjaher myndi í fyrramálið, eftir ákall fjölda ríkja, taka til við að fylgja skipum gegnum sundið. Það væri mannúðarmál enda væru matarskortur og hreinlætisvandi tekin að gera vart við sig meðal fjölmennra áhafna skipanna.