Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þurfa ekki að beygja sig undir nýja harðneskjulega heimsmynd

Read Full Article →

Leiðtogar yfir 40 evrópskra ríkja og stofnana söfnuðust í dag saman í Jerevan, höfuðborg Armeníu, vegna fundar EPC-klúbbsins, óformlegs samráðsvettvangs Evrópuríkja. Meðal gesta er Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, sem er fyrsti þjóðarleiðtoginn utan Evrópu til að taka þátt í fundinum. Carney sagði að það væru ekki örlög Kanada og Evrópuríkja að beygja sig undir nýja heimsmynd þar sem harka og kröfur um hagsmuni réðu för. Hann sagði samkomuna í Jerevan vera til marks um betri leið sem mætti feta í alþjóðamálum og lagði áherslu á náin samskipti ríkja. Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði að þótt lengi hefði verið rætt um fækkun bandarískra hermanna í Evrópu hefði tímasetning tilkynningar Donalds Trumps, forseta Bandaríkjanna, um brotthvarf 5.000 hermanna komið á óvart. Hún sagði að bandarískir hermenn væru ekki aðeins til varnar evrópskum hagsmunum heldur líka til að verja hagsmuni Bandaríkjanna. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði að sjálfstæð Evrópa væri meginmálið í umræðum dagsins. Hún sagði að það ætti við um sjálfstæði í orku, varnarmálum og aðfangaleiðum.

Share this article