Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kallas segir ESB verða að mæta Bandaríkjunum sem ein heild

Read Full Article →

Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins.EPA / OLIVIER HOSLET Kaja Kallas utanríkismálastjóri Evrópusambandsins segir í viðtali við fjölmiðilinn Financial Times að Bandaríkin reyni að sundra Evrópu. Kallas segir að það sé mikilvægt fyrir alla að skilja að Bandaríkin vilji með skýrum hætti sundra Evrópu. Hún segir þessa aðferð Bandaríkjanna áþekka aðferðum andstæðinga sambandsins. Kallas segir að Evrópusambandsþjóðir eigi að mæta Bandaríkjunum sem ein heild, frekar en að hver þjóð eigi í tvíhliða samskiptum við Bandaríkin. Bandaríkjunum líki ekki þegar Evrópusamabandið standi saman, því þannig sé Evrópa jafningi Bandaríkjanna.

Share this article