Stjórnvöld í nokkrum ríkjum hvetja Bandaríkjamenn og Írana til að komast hjá stigmögnun átaka. Stórfelldar árásir voru gerðar á Sameinuðu arabísku furstadæmin í gær. Franskir og sádiarabískir ráðamenn, breski forsætisráðherrann Keir Starmer og Friedrich Merz Þýskalandskanslari lýstu miklum áhyggjum og sá síðastnefndi sagði Írana þurfa að setjast að samningaborði og hætta að halda Mið-Austurlöndum í gíslingu. Árásirnar á furstadæmin eru raktar til Írana, sem sverja þær ekki af sér. Bandaríkjaher kveðst hafa grandað sex írönskum herbátum sem ógnuðu skipaumferð á Hormússundi í gær og skotið niður eldflaugar og dróna sem stefndu á flutninga- og herskip . Íranskir ráðamenn segja ekkert hæft í því að herbátum hafi verið sökkt. AFP-fréttaveitan hefur jafnframt eftir ónafngreindum en háttsettum írönskum embættismanni að ætlunin hafi ekki verið að ráðast á furstadæmin en ólögmæt ævintýramennska Bandaríkjahers við fylgdarsiglingar um Hormússund hefði verið kveikja árásanna. Bandaríkjaher sé því um að kenna. Stjórnvöld í furstadæmunum segja árásirnar óásættanlega stigmögnun og áskilja sér rétt til að svara í sömu mynt. Ekkert skólahald verður í landinu fram að helgi vegna yfirvofandi hættu af árásum.
This article describes an escalating geopolitical threat vector involving retaliatory kinetic and cyber attacks between state actors, including missile and drone strikes attributed to Iran targeting the UAE and U.S. naval interdictions in the Strait of Hormuz. The article does not describe a technical software vulnerability and therefore contains no information regarding a CVSS score, affected software versions, patches, or technical workarounds.