Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 5.5.2026 | 6:00 Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Horft yfir Ísland utan úr geimi í gær. Hrakandi grunnhæfni íslenskra nemenda er talin stefna langtímahagvexti landsins í hættu. Ljósmynd/NASA Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Skólayfirvöld axli ábyrgð Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Vita ekki fjölda kennslustunda sem falla niður Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Sameining er ekki í bígerð » Fleiri tengdar fréttir Grunnhæfni íslenskra nemenda til náms hefur hrakað mjög undanfarna tvo áratugi. Þetta ógnar langtímahagvexti landsins og velferð landsmanna, að mati Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Telur stofnunin mikilvægt að menntayfirvöld í landinu grípi til aðgerða eins fljótt og auðið er, enda tekur langan tíma fyrir kerfislægar yfirhalningar að skila árangri. Staðan er alvarleg, að sögn sérfræðinga, en þó eru ýmsar lausnir í sjónmáli. Nær ár er nú liðið frá því að ­skýrsla OECD fyrir Ísland árið 2025 var kynnt, þar sem hvatt var meðal annars til þess að menntayfirvöld efldu eftirlit með árangri nemenda og efldu íslenskukennslu fyrir nemendur af erlendum uppruna. Haldið er málþing á morgun á vegum Háskóla Íslands undir yfirskriftinni Íslenskukennsla á tímamótum – Styðjum kennara með verkfærum sem virka , en þar verður sú uggvænlega staða sem ríkir hér á landi kynnt og jafnframt fjallað um forsendur námsárangurs, sem sýnt hefur verið fram á að felist að miklu leyti í skilningi á tungumáli skólans. Heildarframleiðni Íslands gæti dregist saman um 5% Langtímaáhrif þess að árangri íslenskra barna samkvæmt PISA-könnunum fari hrakandi eru veruleg, að því er fram kemur í ­skýrslu stofnunarinnar. Miðað við þá staðreynd að meðalárangur nemenda á Íslandi féll um 40 stig milli áranna 2006 og 2022 er útlit fyrir að heildarframleiðni landsins gæti minnkað um 5% til langs tíma. Í skýrslunni er jafnframt bent á að þótt hið dreifstýrða skólakerfi á Íslandi og menntastefna stjórnvalda til ársins 2030 hafi marga kosti séu skýr teikn um að efla þurfi ábyrgð og eftirfylgni innan skólakerfisins. Stjórnvöld verði að ráðast í heildstæðar menntaumbætur, til að mynda með upptöku samræmdra prófa, fylgjast betur með nemendum og efla íslenskukennslu fyrir börn innflytjenda með skýrari hætti en kveðið er á um í menntastefnu. Menntastefnan enn sú sama Menntastefna stjórnvalda til ársins 2030 hefur ekki verið uppfærð til þess að endurspegla niðurstöður skýrslunnar, þó samræmt námsmat hafi verið eflt í formi matsferilsins svokallaða. Því má vera ljóst að rými er til umbóta innan menntakerfisins og tímabært að leita lausna með gagnreyndum aðferðum. Í nýútgefinni grein í tímaritinu Málfregnum, sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær, er fjallað um mikilvægi lesskilnings sem undirstöðu námsárangurs og einnig um þá mögulegu lausn að innleiða kennslu í námsorðaforða í námskrár í auknum mæli, enda hafa innlendar rannsóknir sýnt fram á að slík kennsla skili sér í betri námsárangri hjá börnum af innlendum jafnt sem erlendum uppruna. Farið verður ítarlegar yfir þá lausn á málþinginu, þar sem alþingismenn og forystufólk úr Kennarasambandi Íslands taka þátt í pallborðsumræðum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Skólayfirvöld axli ábyrgð Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Vita ekki fjölda kennslustunda sem falla niður Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Sameining er ekki í bígerð » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » 26 látnir og tugir slasaðir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Handtekinn fyrir líkamsárás og vopnalagabrot Él og kalt í veðri á Norður- og Austurlandi Enn eitt dæmi um gullhúðun Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Umræðan Enginn einn í lokin Varnir vinaþjóða í 75 ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hætta á sinueldum og éljum í vikunni Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma „Vil meina að ég hafi sýnt töluverða viðleitni“ Mest lesið Í gær Í vikunni Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu „Ég er heppin kona“ Horfa ekki til sólmyrkva í kjaraviðræðum Góðmennskan geislaði af páfanum Framkvæmdum seinkað um sjö ár að meðaltali Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt „Verðum að gera ráð fyrir að það geti orðið annað gos“ Áburður fluttur á ónýtum þjóðvegum Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Allt hefur verið afbókað“ Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Nýjast á mbl.is » 26 látnir og tugir slasaðir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Handtekinn fyrir líkamsárás og vopnalagabrot Él og kalt í veðri á Norður- og Austurlandi Enn eitt dæmi um gullhúðun Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Umræðan Enginn einn í lokin Varnir vinaþjóða í 75 ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma 100 dagar í almyrkvann: Þetta er gott að vita Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Mest lesið Í gær Í vikunni Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu „Ég er heppin kona“ Horfa ekki til sólmyrkva í kjaraviðræðum Góðmennskan geislaði af páfanum Framkvæmdum seinkað um sjö ár að meðaltali Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt „Verðum að gera ráð fyrir að það geti orðið annað gos“ Áburður fluttur á ónýtum þjóðvegum Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Allt hefur verið afbókað“ Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu

Share this article