Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Erla Björg nýr menningarritstjóri RÚV

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 23 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Ríkisútvarpið Erla Björg nýr menn­ing­ar­rit­stjóri RÚV Ásta Hlín Magnúsdóttir Erla Björg Gunnarsdóttir hefur verið ráðin menningarritstjóri RÚV. RÚV / Ragnar Visage Erla Björg Gunnarsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf menningarritstjóra RÚV. Erla Björg lét af störfum sem ritstjóri fréttastofu Sýnar í janúar en hún hafði starfað við fjölmiðlun hjá fyrirtækinu frá 2014. Erla Björg er með meistaragráðu í menningar- og fagurfræði frá Háskólanum í Árósum og BA-gráðu í stjórnmála- og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands. Starfið var auglýst fyrr á árinu, alls sóttu 48 um. Fyrir 3 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hvaða mál­efni skipta fólk mestu máli fyrir kosn­ing­arn­ar? Málefni sveitarfélaga snúast fyrst og fremst um að sinna nærþjónustu við íbúa - til dæmis sorphirðu, snjómokstri, rekstri leik- og grunnskóla og þjónustu við aldraða. Hvað skiptir fólk mestu máli fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar? Fyrir 18 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ríkið sýknað í máli Lár­us­ar Weld­ing Mannréttindadómstóll Evrópu sýknaði íslenska ríkið í dag í máli sem Lárus Welding höfðaði gegn því. Hann taldi brotið á rétti sínum til sanngjarnra réttarhalda með skipun sérfróðs meðdómanda við hlið skipaðra dómara. Fyrir 22 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Frost, snjór og hálka í kort­un­um fyrir hluta lands­ins Það er kuldi í veðurkortunum næstu daga og hluti landsmanna þarf að aka með gát, þar sem vetrarfærð er á vegum. Engar tveggja stafa tölur eru í veðurspánni, svo langt sem hún nær. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Þessi vöktu mesta at­hygli fyrir klæða­burð á Met Gala Klæðnaður gesta á hinum árlega viðburði Met Gala í New York vakti athygli. Margir þeirra lögðu greinilega mikið í klæðnaðinn. Sjón er sögu ríkari. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál WHO segir mögu­legt að hant­a­veir­an smit­ist manna á milli Tvö tilfelli hantaveiru hafa verið staðfest um borð í skemmtiferðaskipi við Grænhöfðaeyjar og fimm til viðbótar eru til rannsóknar, að sögn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO. Grunur er um að veiran smitist manna á milli. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Hetjan var ekki með regl­urn­ar á hreinu: „Ég hef aldrei lent í þess­ari stöðu á ferl­in­um“ Daníel Freyr Andrésson, markvörður FH, var hetja liðsins í gærkvöld þegar hann varði vítakast undir lok leiks í tvíframlengdri viðureign FH og Vals. Fram undan er oddaleikur um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag 4.387 börn fædd­ust í fyrra Brynjólfur Þór Guðmundsson Lítið eitt fleiri börn fæddust í fyrra en árið á undan. Alls komu 4,387 börn í heiminn á síðasta ári, 76 fleiri en 2024. Drengir voru öllu fleiri en stúlkur, 2.292 á móti 2.095. Frjósemi kvenna hefur aldrei verið minni frá því mælingar hófust hér á landi 1853. Frjósemin var 1,56 börn á hverja konu sem bjó á Íslandi. Það er sama hlutfall og 2024 en það hefur aldrei verið lægra. Yfirleitt er miðað við að frjósemi sé 2,1 barn á hverja konu til að viðhalda mannfjölda. Það hlutfall náðist síðast 2012. Frjósemi á Norðurlöndum var mest í Færeyjum, 2,1, en minnst í Finnlandi, 1,3. Scott Webb Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Döns­uðu skott­ís í peysu­föt­um og an­órökk­um Peysufatadagur Verzlunarskólans var haldinn hátíðlegur í gær. Tveir grænlenskir nemendur skólans klæddust anórökkum í tilefni dagsins. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Börn og ung­menni 17 ára og yngri frá frítt í sund Mist Þormóðsdóttir Grönvold Börn og ungmenni 17 ára og yngri með lögheimili í Reykjavík fá frían aðgang í sund og á Ylströndina frá og með 5. maí. Ný gjaldskrá hjá sundlaugum Reykjavíkurborgar, Ylströndinni og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum tekur gildi í dag. Í tilkynningu Reykjavíkurborgar segir að breytingunum sé ætlað að gera reglulega notkun aðgengilegri og einfalda fyrirkomulag aðgangs fyrir gesti. Með breytingunum lækkar kostnaður árskorts í sundlaugar Reykjavíkur úr 48.000 krónum í 34.000 krónur. Þá lækkar árskort barna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn úr 17.600 krónum í 4.000 krónur. Á Ylströndina lækkar árskortið um 21%. Breytingarnar ná til Sundlauga Reykjavíkur, Ylstrandarinnar og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins Rúv / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kína 26 fórust þegar flug­elda­verk­smiðja sprakk Brynjólfur Þór Guðmundsson Kínversk yfirvöld staðfestu í dag að 26 hefðu farist þegar mikil sprenging varð í flugeldaverksmiðju í Liuyang í Húnan-héraði í Kína í gær. 61 slasaðist í sprengingunni. Fyrsta sprengingin varð rétt fyrir klukkan fimm síðdegis í gær meðan vinna var í fullum gangi. Mikill eldur braust út og mátti heyra fjölda sprenginga í framhaldinu. Tæplega 500 björgunarmenn voru sendir á staðinn til að bjarga fólki og leita í rústunum. Mannskæð slys eru nokkuð tíð í kínverskum flugeldaverksmiðjum. Níu fórust í sprengingu í fyrra og þrír í annarri sprengingu 2023. In this photo released by Xinhua News Agency, this aerial drone photo taken in the early hours of May 5, 2026, rescuers work on site after an explosion at a fireworks plant in Guandu Town of Liuyang, central China's Hunan Province.(Chen Sihan/Xinhua via AP) AP/Xinhua / Chen Sihan Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Ung­linga­skóli opnar í Ármúla Borgarráð hefur samþykkt að leigja Ármúla 28-30 fyrir leik- og grunnskólastarfsemi. Stefnt er að opnun unglingaskóla í húsnæðinu haustið 2027. Verkefninu er ætlað að mæta brýnni þörf á auknu plássi. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Ég væri ekki hér og nú uppi­stand­andi ef hann hefði ekki passað upp á mig“ Marta María segir eitt það dýrmætasta í lífinu vera að eiga góðan maka. Eftir erfiðan missi hefur eiginmaður hennar staðið þétt við bakið á henni og var það sú ást sem varð til þess að hún tók upp eftirnafn hans. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Lét fyr­ir­tæk­ið borga per­sónu­leg­an kostn­að í stað skatta og ið­gjalda Verktaki fær ekki að stunda atvinnurekstur í tvö ár. Dómari segir hann hafa kerfisbundið tæmt fyrirtæki af fjármunum fyrir gjaldþrot. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Veru­leg nei­kvæð áhrif á lands­lag og ásýnd Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun segir að lítið sé hægt að gera til að draga úr neikvæðum áhrifum vindorkuvers á Garpsdalsfjalli á landslag og ásýnd. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Svalt og blæs aðeins Frekar kuldalegt verður í dag og hiti aðeins um frostmark norðan- og austan til. Ögn hlýrra verður sunnan og vestan til. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Yoko Ono var súr í bragði yfir bjórn­um John Lemon Bjór með sítrónubragði er nánast uppseldur eftir að lögmenn Yoko Ono kröfðust þess að lítið brugghús í Frakklandi greiddi henni þóknun eða hætti að framleiða bjórinn, enda væri heiti hans alltof líkt nafni Johns Lennon heitins. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Rán og grip­deild­ir í höf­uð­borg­inni og tveir hand­tekn­ir fyrir lík­ams­árás­ir Markús Þ. Þórhallsson Lögregla að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV / Vignir Már Eiðsson Tveir menn í annarlegu ástandi voru í gærkvöld eða nótt handteknir annars vegar í Kópavogi og hins vegar í miðborg Reykjavíkur fyrir líkamsárásir sem leiddu af sér minniháttar áverka, að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sá síðarnefndi braut einnig gegn lögum um vopnaburð. Alls gistu fjórir fangageymslur í morgun, þeirra á meðal maður sem í annarlegu ástandi framdi rán miðsvæðis í borginni. Auk þess sinntu lögreglumenn útköllum vegna þjófnaðar úr verslunum og í einu tilfelli var reiðhjól tekið ófrjálsri hendi. Bæði þjófurinn og hjólið fundust fljótlega. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Rudy Giuli­ani sagður á hægum bata­vegi Markús Þ. Þórhallsson Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, er sagður á hægum batavegi eftir að hann fékk heiftarlega lungnabólgu og var lagður inn á sjúkrahús. Rudy Giuliani fékk svæsna lungnabólgu og var settur í öndunarvél. EPA / STEVE POPE Talsmaður Giulianis segir hann hafa verið tekinn úr öndunarvél og segir veikindin tengjast hryðjuverkaárásunum á New York 2001. Þá hafi borgarstjórinn þotið í átt að Tvíburaturnunum til liðsinnis og hafi þá andað að sér hættulegum efnum sem ollu honum lungnasjúkdómi. Því sé hann viðkvæmari en ella fyrir öllu áreiti og sýkingum í öndunarfærum. Enn hefur hvorki komið fram hve lengi Giuliani hefur verið veikur né hvar hann nýtur umönnunar. New York Times segir hann dvelja í Flórída. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bíla­flutn­inga­skip Maersk sigldi í her­skipa­fylgd gegnum Hormúss­und Bílaflutningaskip í eigu bandarísks dótturfyrirtækis danska skipafélagsins Maersk fór í bandarískri herskipafylgd gegnum Hormússund og út úr Persaflóa í gær. Siglingin er sögð hafa gengið hættulaust, vel og fagmannlega fyrir sig. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Uggur vex um stig­mögn­un átaka milli Banda­ríkja­manna og Írana Bandaríkjamenn og Íranar eru hvattir til að forðast að magna upp átök að nýju eftir að stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum tilkynntu um stórfelldar eldflauga- og drónaárásir á olíuvinnslustöðvar í gær. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar og Úkra­ínu­menn lýsa hvorir yfir sínu vopna­hléi Ný tegund vopnahlésdeilu hefur sprottið upp milli Úkraínumanna og Rússa með því að bæði ríki lýsa hvort yfir sínu hléi á ólíkum dögum. Vopnahlé Úkraínumanna á að hefjast annað kvöld og Rússa um helgina þegar sigri í síðari heimsstyrjöld er fagnað. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Brennu­varg­ur sagður hafa horn í síðu auðugs fólks Andúð á auðugu fólki er sögð ein ástæða þess að bandarískur leigubílstjóri kveikti vísvitandi gróðurelda nærri Pacific Palasides-hverfinu í Los Angeles á síðasta ári. Tólf fórust og fjöldi húsa gereyðilagðist. Hann hefur ávallt neitað sök í málinu. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Vopn­að­ur maður skot­inn skammt frá Hvíta húsinu Markús Þ. Þórhallss

Share this article