Security News

Cybersecurity news aggregator

🏥
INFO News Mbl Innlent

„Við getum ekki búið við þessar aðstæður“

  • What: The director of Landspítala hospital states that new nursing and day care facilities are insufficient to improve the situation at the emergency room.
  • Impact: The hospital needs to find more solutions to alleviate the pressure on the emergency room.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.2.2026 | 15:37 „Við getum ekki búið við þessar aðstæður“ Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala. mbl.is/Arnþór Birkisson Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, segir ný hjúkrunar- og dagdvalarrými ekki duga til að bæta stöðuna á bráðamóttökunni að því marki sem nauðsyn krefur og því þurfi að finna fleiri lausnir fyrir spítalann. Það muni þó sannarlega um rýmin. Alma Möller greindi frá því í gær að á næstu dögum opni 17 ný hjúkrunarrými og 28 dagdvalarrými til að taka við sjúklingum. Á næstu mánuðum bætist svo við 100 rými í Urðarhvarfi. „Munar sannarlega um þessi rými“ „Það munar um allt, svo sannarlega. Það sem við höfum náttúrulega verið að kalla eftir eru skyndiúrræði, í rauninni neyðarúrræði - að það sé gripið til allra tiltækra ráða til þess að létta undir stöðuna á bráðamóttökunni, sem er komin langt út fyrir öll mörk, og í rauninni fyrir löngu. En það er bara þannig að það hefur orðið ör versnun á slæmu ástandi á síðustu vikum þannig það verður að grípa inn í og það munar sannarlega um þessi rými,“ segir Runólfur í samtali við mbl.is. Hann segir þörf á fleiri skyndilausnum og nefnir rýmin í Urðarhvarfi, sem hann reiknar með að bætist við eftir um einn til þrjá mánuði. „Það þarf líka að brúa það bil vegna þess að við getum ekki búið við þessar aðstæður sem að núna eru fyrir hendi þannig að við eigum í samtali um að leita allra mögulegra skjótvirkna lausna,“ segir Runólfur og bætir við: „Ástandið er bara orðið þannig að þó að þessi rými séu umtalsverður fjöldi, sem munar sannarlega um, þá er það ekki nóg til að bæta stöðuna að því marki sem að nauðsyn krefur.“ Frétt af mbl.is Mestu vonbrigðin í forstjóratíð Runólfs Ekki með húsnæði til þess að rúma starfsemina Stéttarfélög starfsfólks bráðamóttökunnar boðuðu í gær til fundar með félagsfólki sínu sem starfar á deildinni. Markmið fundarins var að stéttarfélögin fengju að heyra upplifun starfsfólksins af vinnunni á bráðamóttökunni. Í samtali við mbl.is sagði Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, að samfélagið hefði margoft heyrt neyðaróp frá bráðamóttökunni. Starfsfólk hefði ítrekað bent á óviðunandi aðstæður, meðal annars fjölda sjúklinga sem fái ekki það næði sem þeir eigi rétt á. „Það birtist ályktun frá þeim og allt sem kemur þar fram er bara satt og rétt. Það er ekkert hægt að segja annað. Við höfum verið að vinna að þessu tiltekna máli núna í allmörg ár,“ svarar Runólfur aðspurður um fundinn. „Auðvitað er þetta snúið að því leyti til að það er þessi mikla uppbygging sem á sér stað við Hringbraut - hún hefur tafist. Það hefur gert það að verkum að við höfum lent í þessum aðstæðum að við erum ekki með húsnæði til þess að rúma þá starfsemi sem við þurfum að standa fyrir og þá þjónustu sem við þurfum að veita.“ Frétt af mbl.is „Hvar eru þessir eftirlitsaðilar?“ Frétt af mbl.is Lýsi ófremdarástandi á bráðamóttökunni „Það verður bara að grípa inn í“ Runólfur bendir á að upphaflega hafi staðið til að nýr meðferðarkjarni opnaði árið 2024, þar á meðal ný bráðamóttaka. Því hafi seinkað og nú sé útlit fyrir að kjarninn verði ekki kominn í fulla virkni fyrr en á árunum 2029–2030. „Við erum bara komin í þá aðstöðu að við höldum þessu ekki á floti nema með einhverjum inngripum og helst framkvæmdum eins og eru í gangi þarna inni í Fossvogi þar sem á að rísa ný bráðamatsdeild. Af því það verður bara að grípa inn í. Við getum ekki bara búið við þessar aðstæður þangað til að mannvirkin við Hringbraut verða loksins tilbúin,“ segir Runólfur og nefnir sömuleiðis að bráðamatsdeildinni hafi einnig verið seinkað; hún hafi átt að vera tilbúin í lok árs 2025 en að nú sé stefnt á að hún verði tilbúin um mánaðarmót apríl maí á þessu ári. „Eðlilega, þegar það var gert ráð fyrir að nýju mannvirkin yrðu tekin í notkun 2024, þá var haldið aftur að öðrum framkvæmdum eins og stækkun bráðamóttökunnar,“ segir Runólfur að lokum. Frétt af mbl.is Nýtt sjúkrahús í notkun eftir 5 ár Góðar fréttir fyrir meistarana „Við getum ekki búið við þessar aðstæður“ Fjórði stjóri Nottingham Forest á tímabilinu Sökuðu Bondi um yfirhylmingu í Epstein-málinu Öryggisstjóri Anthropic hættir og segir heiminn í hættu Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert „Forsætisráðherra er bara að ljúga að þjóðinni“ Dómur staðfestur yfir konu sem myrti son sinn Nóttin með Høiby mínútu fyrir mínútu Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Vilja bílhræin burt af lóðinni Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Fengu skemmu gefins Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Kalt heimskautaloft færist yfir landið Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Góðar fréttir fyrir meistarana „Við getum ekki búið við þessar aðstæður“ Fjórði stjóri Nottingham Forest á tímabilinu Sökuðu Bondi um yfirhylmingu í Epstein-málinu Öryggisstjóri Anthropic hættir og segir heiminn í hættu Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert 50-60 metra rof á Reynisfjöru Sigrún, Ævar, Elín, Kristín og Margrét unnu Vilja bílhræin burt af lóðinni Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Vilja bílhræin burt af lóðinni Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Fengu skemmu gefins Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Kalt heimskautaloft færist yfir landið Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson

Share this article